Andvari - 01.06.1966, Page 6
4
BJARNI BENEDIKTSSON
ANDVARI
eins og annarra íslendinga til hinna fornu höfðingjaætta hér á landi og stór-
höfðingja í Noregi.
Þau Thor Jensen og Margrét Þorbjörg Kristjánsdóttir felldu hugi saman
og giftust hinn 21. maí 1886. Thor Jensen varð einhver mesti, ef ekki mesti frarn-
kvæmdamaður, sem á íslandi hefur lifað, frumkvöðull um innlenda verzlun, í
útgerð, í ræktun og urn menningarlega meðferð mjólkur. Hann var maður
óvenjulega hugmyndaríkur, frábær reikningsmaður og undi sér helzt ekki nema
hann stæði í stórframkvæmdum. Þau tæp 600 ár, sem samband Islands og Dan-
merkur stóð, hefur trauðlega önnur betri sending komið hingað frá Danmörku
en Thor Jensen. Margrét Þorhjörg var kona föst fyrir, rólynd og eiginmanni
sínum hollur ráðgjafi. Hjónaband þeirra var svo farsælt sem bezt mátti verða.
Steinunn móðir Margrétar hjó á heimili þeirra unz hún andaðist í hárri elli.
Þau Thor og Margrét bjuggu saman langa lífdaga og máttu helzt ekki hvort af
öðru sjá. Margrét dó hinn 14. október 1945 og Thor 12. september 1947.
Það sýnir hugðarefni Thors Jensens á meðan hann var verzlunarstjóri í
Borgarnesi og bjó í húsi því, þar sem Jón Björnsson frá Bæ hélt síðan löngum uppi
mikilli rausn, að hann valdi tveim sonurn sínurn, sem eru þar fæddir, nöfn úr
fornum ritum Islendinga: Kjartani úr Laxdælasögu og Ólafi Tryggvasyni úi
Heimskringlu. Urðu þeir hræður síðan lengi samferða í lífinu, voru samtímis í
skóla, giftust á sama degi, bjuggu um langt árabil í sama lnisi og voru alla ævi
mjög samrýmdir eins og raunar þau systkin öll. Því að löngum var til þess
vitnaÖ og stundum að því fundið, að ættartengsl þeirra væru óvenju sterk. Þann
samhug tóku þau með sér úr foreldrahúsum.
Ólafur Thors óx upp með foreldrum sínum, en við hýsna misjafnan hag.
Þegar Thor Jensen hætti störfum í Borgarnesi stofnaði hann eigin verzlun á
Akranesi, en varð þar gjaldþrota og fluttist þá til Hafnarfjarðar. Stundum var
þá þröngt í búi, og taldi Thor þá ekki eftir sér að róa sjálfur til fiskjar í því skyni
að afla matar handa ört vaxandi fjölskyldu sinni. I Reykjavík settust þau hjón
að árið 1901, og varð Thor fljótlega einn af umsvifamestu kaupsýslumönnunr hér í
bæ. Hann keypti hús það, sem Pétur biskup Pétursson áður fyrri hafði búið í, þar
stendur Reykjavíkur apótek nú. Thor stofnaði verzlunina „Godthaah“ í hiskups-
húsinu og hjó þar í fyrstu sjálfur á efri hæð. Brátt keypti hann einnig „gamla póst-
húsið“ og flutti íhúð sína þangað, Hótel Borg stendur nú á þeirri lóð, en „gamla
pósthúsið" er komið inn í Laugarás eftir að hafa allmörg ár verið suður í Skild-
inganesi. Nokkrum árum síðar hyggði hann sitt glæsilega íbúðarhús við Frí-
kirkjuveg 11, sem þá og lengi síðar var glæsilegasta og bezt búna íbúðarhús á Is-
landi. Má segja, að eftir að til Reykjavíkur kom, hafi Ólafur alizt upp við betri
kjör en flestir jafnaldrar hans hér á landi. I Reykjavík gekk Ólafur í skóla, fyrst í