Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1966, Side 11

Andvari - 01.06.1966, Side 11
ANDVAEI ÓLAFUR THORS 9 útgerðarmanna kunnastir meðal almennings. Menn voru þá óvanir slíkum stór- hug á Islandi. Allir báru þeir bræður sig svo vel, að eftir þeim var tekið, og þótr sumir býsnuðust yfir velgengni þeirra og ímýndaðri eyðslu, þá voru þeir þekktir að örlyndi og löngun til að leysa hvers inanns vanda, enda eru þeir ótaldir, sem telja sig eiga þeim feðgum ýmiskonar þakkarskuld að gjalda. Þegar fram á þriðja tug aldarinnar kom, batzt hugur Thors Jensens mjög við hinar miklu ræktunarframkvæmdir á Korpúlfsstöðum. Eftir það sást hann lítt á almannafæri hér í Reykjavík, enda lét hann almenn mál þá lítið til sín taka. Hann var einu sinn kosinn í bæjarstjóm Reykjavíkur, og var sagt, að hann hefði mætt á fyrsta fundi eftir kosningu, talað þar í öllum málum, komið vilja sínum lítt fram og ekki sýnt sig í bæjarstjórn eftir það. Því meira kvað að honum í drepsóttinni miklu haustið 1918. Þá átti hann meiri þátt í hjálparstarfsemi og sýndi bágstöddum meiri gjafmildi heldur en menn áður höfðu átt hér að venjast. A þessúm árum voru synir hans enn ungir að árum, og var í almennings- augum lítt greint á milli þeirra. Snemma skar Olafur sig þó úr um forustu í félagsmálum. Hann varð formaður í Félagi íslenzkra botnvörpuskipaeigenda og þar með oddviti stéttarbræðra sinna um ýmis sameiginleg hagsmunamál, þ. á m. fulltrúi þ eirra í vinnudeilum. Lenti hann þá m. a. í harðri deilu við æskuvin sinn Gísla Jónsson vélstjóra. Urðu af þeim sökum fáleikar með þeim um nokkurt árabil, þótt þeir endurnýjuðu síðan vináttu sína, og enn síðar tókust með þeim tengdir, þegar Þorsteinn sonur Gísla gekk að eiga Ingibjörgu dóttur Ólafs. Ólafur var frá bernsku einlægur aðdáandi Hannesar Flafsteins, en flokks- maður Heimastjórnar var hann ekki meiri en svo, að 1918 greiddi hann að eigin sögn atkvæði á móti sambandslagafrumvarpinu, af því að honum fannst það ganga of skamrnt í sjálfstæðisátt handa Islendingum. Hann hafði heldur aldrei miklar mætur á Jóni Magnússyni, þáverandi foringja Fleimastjórnarmanna; Ólafi þótti hann skorta skörungsskap og vilja stundum vera helzt til hygginn. Ólafur mat hins vegar Jón Þorláksson ætíð manna mest. Ólafi sárnaði t. d., að Hannes Flafstein hefði eitt sinn í kunningjahóp átt að tala um kaldrana- hátt Jóns Þorlákssonar, og hefði Hannes þá auðheyrilega ekki vitað, að enginn bar til hans sannari hlýhug en Jón. Ólafur hafði hins vegar gaman að tveimui sögum um fyrstu kynni manna af Jóni. Sjálfur sagðist liann hafa talað við Jón í fyrsta skipti, er þeir voru á leið á fund Fleimastjómarmanna til að ræða um framboð við þingkosningar i Reykjavík 1919. Þá hafði Jón kallað til sín og beðið sig um að verða sér samferða og síðan sagt eitthvað á þessa leið: ,,Ég vona það, Ólafur Thors, að þér styðjið ekki Láms H. Bjarnason, mann- inn sem drap Hannes Hafstein". Með þessum áróðri Jóns hófst náin samvinna þeirra, er stóð meðan báðii
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.