Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1966, Side 22

Andvari - 01.06.1966, Side 22
20 BJARNI BENEDIKTSSON ANDVAIU að félagið skyldi tekið til gjaldþrotaskipta. Hinn 28. maí 1936 höfðu fjölmenn- ustu verkalýðsfélögin í Reykjavík efnt til mikils útifundar í barnaskólaportinu, þar sem togaraútgerðarmenn, og þá ekki sízt eigendur Kveldúlfs, voru ásakaðir um að valda atvinnuleysi með því að halda ekki skipum sínum nógu lengi út til veiða. Ólafur fór einn síns liðs á fund þennan og vann þar frægan sigur. Þá varð honum og mjög til styrktar fundur urn Kveldúlfsmálið, sem Vörður hélt hinn 24. janúar 1937. Fundinn skyldi halda í Gamla bíó og fylltist það þegar svo, að opna varð VarÖarhúsið, og var þar komið fyrir gjallarliornum. Framsóknarmenn vildu, er á reyndi, ekki fallast á hina harkalegu meðierð á Kveldúlfi, og urðu lyktir málsins þær, að Kveldúlfur samdi við Landsbankann um skuldagreiðslu og þeir bræður Richard og Ólafur fóru til Englands til að afla fjár til byggingar síldarverksmiðju á Hjalteyri, sem reist var vorið 1937, á skemmri tíma en menn þá áttu hér að venjast um slíkar stórframkvæmdir. Urslit Kveldúlfsmálsins áttu sinn þátt í dvínandi vináttu Framsóknar- og AlþýÖuflokks. Var af þeim sökurn efnt til kosninga vorið 1937. Þær fóru þannig, að Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 41,3% atkvæða og 17 þingmenn, Framsóknar- flokkurinn 24,9% atkvæða og 19 þingmenn, Alþýðuflokkurinn 19,0% atkvæða og 8 þingmenn, Kommúnistaflokkurinn 8,5% atkvæða og 3 þingmenn, Bænda- flokkurinn 6,1% atkvæða og 2 þingmenn, Þjóðemissinnar fengu 0,2% atkvæða. Eftir þessar kosningar höfðu Framsóknarmenn og Alþýðuflokksmenn enn meirihluta á þingi eða 27 af 49 þingmönnum. Samkomulag þeirra fór þó stöðugt versnandi. Þegar Framsóknarflokkurinn veturinn 1938 samþykkti með Sjálf- stæðismönnum lög um gerðardóm í sjómannaverkfalli, þá dró Alþýðuflokkurinn mann sinn úr ríkisstjóminni, eins og komizt var að orði. Fór þá Framsóknarflokk- urinn einn með stjórn um hríð. Strax eftir kosningarnar 1937 hafði það gerzt til nýlundu, að Jónas Jónsson, sem áður hafði veriÖ hatrammasti andstæðingur Sjálfstæðismanna, tók að vin- mælast við þá. Réðu því annars vegar málefnalegar ástæður, er hann sá, að sundur dró með Framsókn og AlþýÖuflokki. Hins er og að minnast, að eftir kosningamar 1934 hafði Alþýðuflokkurinn gert að skilyrði fyrir stuðningi sín- um við ríkisstjórnina, að Jónas ætti þar ekki sæti. Hafði hann þá eftirlátið tveim ungurn þingmönnum ráðherrasæti, þeirn Hermanni Jónassyni og Eysteini Jóns- syni. Við kosningarnar 1937 hafði Alþýðuflokkurinn beðið slíkan hnekki, að hann va.r þess ekki umkominn að endurtaka skilyrði um mannaval úr hópi Framsóknarmanna. Hafði Jónas því þreifað fyrir sér hjá skjólstæðinguin sínum, Hermanni og Eysteini, og fljótt orðið þess var, að þeir höfðu báðir í huga að sitja sem fastast í ráðherrastólunum. Jónas leitaði í fyrstu einkum til Magnúsar Guðmundssonar, en eftir and-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.