Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1966, Page 23

Andvari - 01.06.1966, Page 23
ANDVARI OLAFUR THORS 21 lat hans 1 desember 1937 tok að verða mun tiðara með þeim Ólafi Thors en áður hafði verið. Örðugleikar ríkisstjórnarinnar á erfiðum tímum, með heims- styrjöld yfirvofandi, ýttu mjög undir. Snemma árs 1939 voru teknar upp beinar samningaviðræður um myndun samsteypustjómar Framsóknarflokks, Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks. Þrengingar útvegsmanna og sannfæring þeirra urn ranga gengisskráningu hvöttu Ólaf Thors til slíkrar samningsgerðar af hálfu Sjálfstæðismanna. En um það er ekki að villast, að upphafsmaður þessara um- leitana og hins breytta andrúmslofts, sem var forsenda þeirra, var Jónas Jónsson. Þegar til átti að taka, reyndust Sjálfstæðismenn hins vegar mjög klofnir í afstöðu til slíkrar stjómarmyndunar. Ýmsir töldu, að Framsókn væri komin að uppgjöf, og fráleitt væri að rétta henni hjálparhönd um stjóm landsins fyrr en að afloknum kosningum. Meginþorri kjósenda flokksins í Reykjavík mátti ekki heyra Framsókn nefnda til neins samstarfs. Hér við bættist, að forystumenn verzlunarstéttarinnar litu á gengisfellingu sem beint tilræði við sig, þar sem þeir í gjaldeyrisvandræðum og við minnkandi tiltrú þjóðarinnar erlendis höfðu til hins ítrasta notað lánstraust sitt þar í því skyni að afla landinu nauðsynja. Ef gengið yrði fellt, mundu þeir þess vegna hljóta af því stórfellt tjón. Vegna alls þessa urðu mikil átök um það innan Sjálfstæðisflokksins, hvort gengið skyldi til stjómarmyndunar með hinum flokkunum tveimur. Mátti lengi ekki á milli sjá, hvorir ofan á yrðu. Þingflokkurinn greindist í tvo hluta, og hélt hvor hlut- inn um skeið fundi út af fyrir sig. Töldu andstæðingar samvinnunnar sig lengst af í ömggum meirihluta, en líklegra er, að Ólafur hafi ætíð vitað, að hann mundi hafa nægan liðsafla, þegar á reyndi. En sjaldan eða aldrei þurfti hann meira á þreki, þolinmæði og lipurð að halda en í þessari viðureign, bæði til þess að ná samningum á milli flokkanna og að fá allan þingflokk Sjálfstæðismanna til að una samvinnunni eftir að hún hafði verið ákveðin. Raunin varð sú, að hinn 17. apríl 1939 var hin svonefnda þjóðstjóm mynduð með forsæti Her- manns Jónassonar. Átti þar af hálfu Framsóknarflokksins einnig sæti Eysteinn Jónsson, Stefán Jóhann Stefánsson af hálfu Alþýðuflokksins og Ólafur Thors og Jakob Möller af hálfu Sjálfstæðismanna. Jakob hafði verið einn þeirra, sem voru á móti stjómarmynduninni. En ekki sízt að ráðum og með atbeina Ama Jónssonar frá Múla, sem einnig hafði mjög beitt sér gegn þessum ráðagerðum, varð samkomulag um, að Jakob skyldi gerast ráðherra og þar með staðfesta stuðning alls þingflokksins við liina nýju ríkisstjór-n. Bezt yfirlit um viðfangsefnin og þann ágreining, sem leysa þurfti við stjómarmyndunina, fá menn með að lesa þessar yfirlýsingar, sem þá vom gefnar. Forsætisráðherra, Hermann Jónasson, sagði m. a.: „Ríkisstjórnin telur, að meginviðfangsefni hennar verði fyrst og fremst:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.