Andvari - 01.06.1966, Page 26
24
BJARNI BENEDIKTSSON
ANDVARI
hefir veriS tekið tillit til þessara óska Sjálfstæðisflokksins í öllum höfuSefnum,
meS þeirri einni undantekningu, er nú skal aS vikiS:
ÞaS er kunnara en frá þurfi aS segja, aS Sjálfstæðisflokkurinn lítur svo
á, aS frjáls verzlun sé eitt allra helzta skilyrSiS fyrir góSri efnahagsafkomu sér-
hverrar þjóSar. Flokkurinn hefir samt sem áSur á undanförnum árum lagt sam-
þykki sitt á margvíslegar kvaSir, er lagSar hafa veriS á verzlunarfrelsið, en þá
jafnan vegna þess, að hann hefir viðurkennt, að okkur óviðráðanlegar utan-
aðkomandi ástæður hafi knúið til þessa. 1 löggjöf og framkvæmd hefir auk
þess verið gengið lengra á þessu sviði en Sjálfstæðisflokkurinn liefir talið nauð-
synlegt, og þá gegn mótmælum flokksins. Það er því auðskilið mál, að Sjálf-
stæðisflokkurinn telji miklu varða, að þegar í stað verði á þessu nokkrar breyt-
ingar, og myndi flokkurinn að sjálfsögðu hafa boriS fram slíkar óskir við samn-
ingaborðið, þótt eigi hefði fleira komið til en trú flokksins á frjálsa verzlun.
Meðal þeirra mála, er mest voru rædd við samningaumleitanirnar, var hin
aðkallandi þörf til bráðra aðgerða til viðreisnar útvegi landsmanna, og hefir það
mál nú verið leyst með breytingu á skráðu gengi krónunnar og ýmsum ráð-
stöfunum í sambandi viS bá skráningu.
Svo sem kunnugt er, voru skoðanir þingmanna Sjálfstæðisflokksins skiptar
um það, hverja leið bæri að fara til þess að ráða bót á örðugleikum útvegsins.
Stóðu 9 þingmenn flokksins að löggjöfinni um breytingu á skráðu gengi krón-
unnar, en hinir 8 vildu grípa til annarra únæða til úrbóta. Hinsvegar voru allir
þingmenn flokksins á einu máli um það, að yrði sú leið farin, er að var horfið,
myndi það þrennt nauÖsynlegt: að hafður væri hemill á fjáreyðslu hins opin-
bera, jafnt ríkis sem hæjar- og sveitarfélaga, að reynt yrði að greiða nú þegar
eða semja um greiðslur á áhvílandi skuldum, er fallnar eru í gjalddaga, en orðið
hafa í vanskilum vegna gjaldeyrisskorts, og að svo fljótt sem auðið er yrði
verzlunin gefin frjáls, til þess á þann hátt að lækka útsöluverð aðkeyptrar
vöru, og var hið síöasta að margra dómi þyngst á metunum. 1 því skyni að
tryggja þetta óskaði Sjálfstæðisflokkurinn þess, að fá yfirráð innflutnings-
haftanna og gjaldeyrisverzlunarinnar, og lögðu 8 af þingmönnum flokksins
svo ríka áherzlu á þá ósk, að þeir töldu rétt að gera uppfylling hennar að
skilyrði fyrir þátttöku flokksins í stjórn landsins, en hinir 9 töldu að eftir at-
vikum væri eigi rétt að hafna þeim boðurn, er fyrir lágu, enda var þá lögð í
hendur ráðhemtm flokksins meðferð fjármála, skatta- og tollamála, ríkiseinka-
sala, bræðslustöðva ríkisins, síldareinkasölunnar, sölusamlagsins, fiskimála-
nefndar, samgöngumálanna á sjó og landi, pósts og síma, iðnaðarmálanna, auk
ýms annars.
Flokkurinn tók að lokum þá ákvörðun, að ganga til stjómarsamvinnu á