Andvari

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Andvari - 01.06.1966, Qupperneq 29

Andvari - 01.06.1966, Qupperneq 29
ANDVARI ÓLAFUR THORS 27 hervernd landsins, eins og Bretar fóru fram á hinn 24. júní 1941. Kom þar hvort tveggja til: Stuðningur Olafs við málstað Vesturveldanna og sú skoðun hans, að sökum þess að Bandaríkin voru þá enn hlutlaus horfði slíkur samningur í hlut- leysisátt og til þess að draga ófriðarhættu frá íslandi. Hervemdarsamningurinn var staðfestur á Alþingi og af ríkisstjóm hinn 10. júlí 1941. Áður urn vorið, í maí, hafði orðið að ráði að fresta kosningum til Al- þingis, þ. e. framlengja umboð þingmanna, vegna þess hvemig ástatt var, landið hemumið og yfirvofandi að það drægist í bein hernaðarátök. Meginþorri þing- manna var þá þessari ákvörðun sammála, enda stóðu allir flokkar að ríkisstjórn- inni þá nerna kommúnistar, sem einnig snerust gegn kosningafrestuninni. Þegar fram á haustið kom, fór að hrikta í stjómarsamvinnunni. í kjölfar hinnar miklu atvinnu, sem skapaðist við margháttaðar vamarframkvæmdir, fylgdu hækk- anir á kaupi ög verðlagi. Vildu þá ýmsir láta bregðast hart við og beita lögþvingun til að koma í veg fyrir verðbólgu. Framsóknarmenn höfðu forystuna um þær lög- þvingunarráðagerðir, og þegar þær náðu ekki fram að ganga um haustið 1941, baðst Hermann Jónasson lausnar fyrir sig og stjórn sína, en endurreisti hana síðan aftur með öllu óbreytta fyrir forgöngu ríkisstjórans, Sveins Björnssonar. Þegar fram yfir áramót kom, þótti þó ekki lengur fært að láta við svo búið sitja, og samþykkti þá ríkisstjórnin með atkvæðum allra nema Stefáns Jóhanns Stefánssonar, fulltrúa Alþýðuflokksins, að setja hinn 8. janúar 1942 bráðabirgða- lög urn gerðardóm í kaupgjalds- og verðlagsmálum. Stefán Jóhann Stefánsson baðst þegar lausnar, og tók Ólafur Thors þá við meðferð utanríkismála en sleppti nokkrum málum, er hann áður hafði farið með sem atvinnu- og samgöngumála- ráðherra. Verkalýðshreyfingin brást hið versta við setningu gerðardómslaganna. And- stöðu hennar fylgdi allmikill órói í Reykjavík og meðal annars vinnustöðvun í prentsmiðjum þar. í janúarlok áttu hins vegar að fara fram bæjarstjórnarkosning- ar, og varð það til þess, að hinn 17. janúar voru sett bráðabirgðalög um frestun bæjarstjórnarkosninga í Reykjavík með svofelldri greinargerð: „í Reykjavík er vinnustöðvun í prentsmiðjum, svo að einungis blöð eins stjómmálaflokks geta komið út með venjulegum hætti. Nú er það eitt af gmnd- vallaratriðum í stjómarfari landsins, að eigi séu óeðlilegar hömlur á því, að menn geti látið í ljós skoðanir sínar og að almenningur eigi á þann veg þess kost að fylgjast með þeirn athurðum, er gerast, og kynnast frjálsri túlkun þeirra. Þar sem kornið hefur verið í veg fyrir, að svo geti orðið í Reykjavík, leiðir þar af, að á rneðan svo stendur getur ekki talizt réttmætt að frarn fari almennar kosn- ingar í bænum. Telur ríkisstjórnin því, að fresta beri bæjarstjórnarkosningum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.