Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1966, Page 30

Andvari - 01.06.1966, Page 30
28 BJARNI BENEDIKTSSON ANDVARl þeini, sem áttu að fara fram 25. jan. n. k., þar til liæfilegum tíma eftir að lýkur því óeðlilega ástandi, sem nú ríkir.“ Þessi bráðabirgðalög voru sett samkvæmt tillögum og á ábyrgð Jakobs Möllers, sem tekið bafði við sveitarstjórnarmálum eftir að Stefán Jóhann Stefáns- son hvarf úr ríkisstjóm. En venju samkvæmt voru þau borin undir ríkisstjóm- ina alla, og töldu Framsóknarmenn sér ekki fært að fallast á útgáfu þeirra, nema því aðeins, að Sjálfstæðismenn bétu því á móti að eiga ekki á kjörtímabilinu hlut að setningu löggjafar um nýja kjördæmaskipun. Framsóknarmenn töldu þá lík- legt eða nær víst, að Alþýðuflokksmenn mundu bera fram tillögu um stjómar- skrárbreytingu þessa efnis, þegar Alþingi kæmi saman. Um þetta skarst í odda innan ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæðismenn töldu, að fráleitt væri að áskilja sér umbun fyrir stuðning við svo sjálfsagt réttlætismál sem frestun bæjarstjómar- kosninga eins og á stóð. Framsóknarmenn litu á skilorð sitt sem eðlilega varúð á viðsjálum tímum. Endirinn varð sá, að Olafur Thors gaf þeim yfirlýsingu um viðhorf ráðheiTa Sjálfstæðisflokksins til bugsanlegra tillagna um kjördæma- breytingu, sem þeir töldu sér fullnægjandi, en fullyrtu síðar, að ekki hefði verið staðið við. Raunin varð sú, að þegar þing kom saman var af Alþýðuflokksins hálfu flutt frumvarp um stjórnarskrárbreytingu til endurbóta á kjördæmaskipuninni. Um afgreiðslu þess hófst mikið þóf á þinginu, bæði innan flokka og á milli flokka. Yfirgnæfandi meirihluti Sjálfstæðisflokksins krafðist þess, að þetta tæki- færi til leiðréttingar á kjördæmaskipuninni yrði notað, svo fremi sem þingkosn- ingar á annað borð færu fram. Framsóknarmenn vildu hins vegar ekki fresta þingkosningum lengur, þar sem þeir sögðu fylgi yfirgnæfandi meirihluta þing- heims við kosningafrestun ætíð hafa verið forsendu fyrir slíkri frestun. Afleið- ingin af öllu þessu varð sú, að stjómarskrárbreytingin var samþykkt á Alþingi um vorið 1942 í fullri óþökk Framsóknar og með miklum svigurmælum af þeirra hálfu í garð Ólafs Thors um brigðmælgi. Þau brigzl urðu því harðari, þegar það kom í hlut Ólafs að mynda minnihluta ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins í því skyni að koma málinu fram. Ölafur taldi Framsóknarmenn mega sjálfum sér um kenna, að til stjórnarskrárbreytingar kæmi, því að efnisskilyrði fyrir kosn- ingafrestuninni væri enn fyrir hendi. Fiann hefði auk þess í allra lengstu lög reynt að ná samkomulagi við Framsókn um kjördæmabreytinguna. Hitt væri ekki á valdi sínu að stöðva framgang hennar úr því, sem komið væri. Hinn 16. maí 1942 tilkynnti Ólafur Thors á Alþingi myndun sinnar fyrstu ríkisstjómar og sagði m. a.: „. . . hef ég myndaö nýtt ráðuneyti, og er það svo skipaÖ, að auk mín eiga sæti í því alþingismennirnir Jakob Möller og Magnús Jónsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.