Andvari - 01.06.1966, Síða 42
40
BJARNI BENEDIKTSSON
ANDVARI
öll atriði, sem máli skipta í því sambandi, og gefa Alþingi skýrslu um málið
strax og það kemur saman.“
Samkvæmt þessu fyrirheiti hóf ég í júlílok umræður við umboðsmenn
stjómar Bandaríkjanna um þetta mál í heild. Niðurstaðan liggur nú fyrir á
því þingskjali, sem hér er til umræðu.
Aðalatriðin eru þessi:
1. Herverndarsamningurinn frá 1941 er úr gildi felldur.
2. Bandaríkin skuldbinda sig til að hafa flutt allan her sinn burt af íslandi
innan 6 rnánaða frá því hinn nýi samningur gengur í gildi.
3. Bandaríkin afhenda íslendingum tafarlaust Keflavíkurflugvöllinn til
fullrar eignar og umráða."
Ennfremur sagði Ólafur:
„Bandaríkin hafa með þessu samningstilboði algerlega fallið frá öllum
kröfum um herstöðvar og landsréttindi. Hið eina, sem eftir stendur, er, að
Bandaríkin skuli, um takmarkaðan og stuttan tíma, fá að hafa áfram þau og
þau ein afnot af Keflavíkurflugvellinum, sem þau telja sér nauðsynleg til þess
að geta innt af hendi þær skyldur, sem þau hafa tekið að sér í sambandi við
herstjóm Þýzkalands. Em þau réttindi nánar skilgreind í 5. gr., og skal ég leyfa
mér að lesa hana upp:
„Flugfömm þeim, sem rekin eru af Bandaríkjastjóm eða á hennar veg-
unr í sambandi við famkvæmd þeirrar skyldu, er Bandaríkin hafa tekizt á
hendur, að hafa á hendi herstjóm og eftirlit í Þýzkalandi, skulu áfram heimil
afnot af Keflavíkurflugvellinum. I þessu skyni skal stjóm Bandaríkjanna heimilt
að halda uppi á eigin kostnað, beinlínis eða sína ábyrgð, þeirri starfsemi, þeim
tækjum og því starfsliði, sem nauðsynlegt kann að vera til slíkra afnota. Taka skal
sérstakt tillit til sérstöðu flugfara og áhafna þeirra hvað snertir tolla, land-
vistarleyfi og önnur formsatriði. Engin lendingargjöld skal geiða af slíkurn flug-
P*. << <i
rorum.
Þessi 5. gr. samsvarar að efni 4. gr. samningsins sjálfs.
Næstnr Ólafi tók Brynjólfur Bjamason til rnáls og mótmælti samnings-
gerðinni harðlega. Lauk hann máli sínu með þessari yfirlýsingu:
„Sósíalistaflokkurinn lýsir yfir því, að hann telur samningsuppkastið og
alla meðferð þessa máls brjóta algerlega í bág við þann grundvöll, sem stjómar-
samstarfið hvílir á.
Verði þessi þingsályktunartillaga samþykkt af hálfu samstarfsflokka Sósíal-
istaflokksins, telur hann, að grundvöllur núverandi stjórnarsamstarfs sé ekki
lengur til.“
Um þetta mál urðu harðar umræður utan þings og innan, og lauk því