Andvari - 01.06.1966, Blaðsíða 45
ANDVARI
ÓLAFUR THORS
43
stæðisflokkurinn tilraun til myndunar meirihlutastjórnar og tók einnig vel
umleitunum Framsóknarflokksins meðan stóð á tilraunum hans til stjórnar-
myndunar.
Eftir aS sannprófað var, aS í bili var ekki auðið að mynda meirihlutastjóm,
beindi forseti íslands þeirri beiðni til mín, að ég myndaði innanþingsstjóm,
enda þótt hún hefði ekki fyrirfram tryggðan stuSning meirihluta Alþingis.
Sjálfstæðisflokkurinn ræddi málið á tveimur fundum, 25. og 26. fyrra mán-
aðar. Leit flokkurinn svo á að athuguðu máli að með því að hann er stærsti flokkur
þings og þjóðar, bæri honum ótvíræð skylda til þess að verða við framangreind-
um tilmælum forseta íslands, úr því að eigi hefði reynzt auðið að mynda meiri-
hlutastjóm. Tilkynnti ég því forseta íslands, laugardaginn 26. fyrra mánaÖar, að
ég í samræmi við vilja flokksins; tæki að mér að mynda stjórn, svo sem forseti hafði
farið fram á, Var ætlunin að leggja ráðherralistann fyrir forseta til skipunar
ráðuneytis fyrri hluta síðustu viku. En þennan dag að kvöldi lagðist ég í lungna-
bólgu, og hefur því þessi dráttur orðið á stjórnarmynduninni.
Stjóm sú, sem nú sezt að völdum, hefur ekki tryggt sér hlutleysi né stuðn-
ing neinna þingmanna utan Sjálfstæðisflokksins. Flún er því viðbúin vantrausti
hvenær sem er. En á meÖan hún fer með völdin mun hún leitast við að leysa
þann vanda, er liggur fyrir, með þeirri samvinnu við þingið, sem nauðsynleg
er og kostur er á. Enda er það Ijóst, að svo sem Alþingi nú er skipað, verður
úrlausn þeirra mála, sem löggjafar þarf um, ef flokka greinir á um, ekki náð,
nema með samningum þeirra í milli.
Það mál, sem nú þarfnast skjótastrar úrlausnar, er, með hverjum hætti
verði greitt fyrir því af hálfu Alþingis og ríkisstjórnar, að útgerðin þurfi ekki
að stöðvast nú um áramót. En svo sem kunnugt er, hefur allt frá því 1946
þurft að leysa þann vanda með löggjöf. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst yfir
því, að hann teldi þau úrræði, sem beitt hefur verið, ekki vera til frambúðar.
Þótt rnenn greini rnjög á um, hvemig til frambúðar skuli ráða fram úr þessum
málum, em allir, eða flestir, sammála um, að úrlausn fáist ekki, nema gerðar
séu margar samfelldar ráðstafanir, sem verulegs undirhúnings þarfnast og verða
því ekki framkvæmdar án nokkurs aðdraganda. Nægir um þaÖ að vísa til yfir-
lýsinga flokkanna fyrir kosningar. Til bráðabirgða verður því sennilega nú um
áramótin að fara troðnar slóðir, jafnframt því sem þegar í stað verður að hefja
undirbúning lausnar, sem varanlegri geti orðið, og er þar fyrst að telja sam-
þykkt greiðsluhailalausra fjáriaga.
Svo sem afstöðu ríkisstjórnarinnar til Alþingis er háttað, telur hún á þessu
stigi að öÖru leyti ekki ás-æðu til að fjölyrða um fyrirætlanir sínar. Þær munu
koma fram í málurn þeirn, er ríkisstjórnin leggur fyrir Alþingi og daglegum