Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1966, Side 48

Andvari - 01.06.1966, Side 48
46 BJARNI BENEDIKTSSON ANDVARl hans. Haustið 1951 þótti enn rétt að doka við og sjá, hver yrði dómur Alþjóða- dómstólsins í Haag í deilumáli Breta og Norðmanna. Eftir að niðurstöður hans höfðu verið rækilega athugaðar, gaf Ólafur Thors hinn 19. marz 1952 út reglu- gerð um verndun fiskimiða umhverfis ísland og voru nýjar grunnlínur dregnar hvarvetna til friðunar flóum og fjörðum og fjögurra mílna landhelgi ákveðin frá þeim grunnlínum. Reglugerðin öðlaðist gildi hinn 15. maí 1952, og varð það mikill fagnaðardagur meðal Islendinga, ekki sízt hjá þeim, sem framfæri sitt höfðu af sjávarafla. Bretar brugðust hins vegar illa við, og hófst rnargra ára deila við þá. Brezk stjórnarvöld létu raunar sitja við mótmæli, enda skutu þau sér undan því að bera málið undir Alþjóðadómstólinn eins og íslendingar lögðu til, en lögðu af hálfu einkaaðila löndunarbann á íslenzkan ísfisk. Tókst ekki að fá því aflétt fyrr en að nokkrum árum liðnum og þá ekki sízt fyrir forgöngu Ólafs Thors, sem m. a. í eitt sinn fór til viðræðna við brezka stjórnmálamenn í London þessara erinda, að vísu árangurslaust að því sinni, og síðar bæði á fund í Efnahagsstofnun Evrópu og Atlantshafsráðinu, til að vekja athygli hinna æðstu manna í Bretlandi á þeirn vandræðum, er af þessu hlytust. Loks var svo komið vorið 1956, eftir langvinnt samningaþóf, að hægt var að fá löndunarbanninu aflétt. En vegna kergju, sem þá var komin í stjórnarsamstarfið, dróst það þangað til eftir kosningar og myndun Vinstri-stjómarinnar þá um sumarið. Sveinn Björnsson, forseti íslands, dó snemma árs 1952, og voru nýjar forsetakosningar ákveðnar í júní sarna ár. Strax og farið var að ræða um væntanlegt forsetakjör kom í ljós skoðanaágreiningur innan Sjálfstæðisflokksins. Ýmsir hvöttu Ólaf Thors sjálfan til að verða í kjöri, en aðrir töldu það mjög óráðlegt, ekki vegna þess, að Ólafur væri ekki vel til forseta fallinn, heldur af því, að þeir töldu meiri þörf á honum til stjórnmálaforystu. Sjálfur aftók Ólafur með öllu að verða í kjöri; vissi hann og, að Thor bróðir hans hafði hug á framboði. Þegar á reyndi, neitaði Thor þó einnig framboði, e. t. v. vegna þess, að honum þótti stuðn- ingur flokksins við sig ekki nógu eindreginn. Enda töldu sumir Thor þá enn helzt til of ungan, innan við fimmtugt, til þvílíkra starfa, og hreint flokks-framboð ekki vænlegt til sigurs, heldur þvert á rnóti líklegt til að þjappa andstæðingum saman. Innan flokksins náðist ekki fylgi meirihluta hvorki við Asgeir Ásgeirsson né Gísla Sveinsson. Gegn Ásgeiri var það haft, að hann væri þingmaður annars flokks og hefði verið reikull í sínu stjórnmálaráði. Um Gísla Sveinsson töldu flestir, sem til þekktu, að þótt að hann gæti verið manna ljúfastur og léttur í tali, þá ætti hann einnig til slíkt yfirlæti, að ekki hæfði æðsta manni íslenzku þjóðarinn- ar. Að lokum náðist samkomulag við Framsóknarflokkinn um framboð séra Bjama Jónssonar vígslubiskups, sem þó var mjög tregur til að gefa kost á sér. Kosning-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.