Andvari

Volume

Andvari - 01.05.1967, Page 10

Andvari - 01.05.1967, Page 10
8 JÓHANN BRIEM ANDVARI við hinn nýja, breiða þjóðveg og höldum út á hliðarbraut, sem liggur til vesturs. Er sá vegur miklu mjórri og krókóttari. Landið er dálítið öldótt, en vegurinn hlykkjar sig milli bleikra, grýttra hóla. Þótt eyðirnörkin lækki heldur, er sunnar dregur, erum við enn uppi á há- sléttu, nokkur hundmð metra yfir sjávarmáli. Nú taka við smábrekkur, upp og niður, en hingað til hefur landið verið marflatt. Ökumaðurinn dregur úr ferðinni, og það er hvíld í því að fara hægar yfir og sjá betur landið í kring. Eftir nokkra stund kemur í ljós fjallkambur beint framundan með hvössum bergstrýtum og sundurskorinn af gjám. Hann er hárauður að lit eða rósrauður, og er liturinn svo einkennilegur og óeðlilegur, að ég stari agndofa og hugsa: Þetta getur ekki verið rétt. Svona eru ekki fjöll á litinn. Ekillinn bendir mér á þetta einkennilega fyrirbrigði og segir: í þessum fjöllum er Petra. En þangað er ferðinni heitið til að sjá hinar földu borgarrústir, sem naumast eiga sinn líka í allri veröldinni. Þá er ekið niður í dalverpi, og sjást þar nokkrir kofar. Lóðrétt standberg er á hægri hönd, en vatnsmikil lind rennur undan klettinum í skugga dökkra, grósku- mikilla trjáa, er stinga mjög í stúf við bleikt grjótið. Hér er numið staðar, og ég spyr ekilinn, hvað hér sé að sjá, en hann svarar: Aín Músa—Mósesarlind. Það var hér, sem Móses sló vatn af bergi, þegar lýðurinn var að örmagnast af þorsta. Spratt þá upp lind, þar sem áður var þurr eyðimörk, og hefur hún streymt alla tíð síðan. Nokkrir gamlir Arabar eru á rölti hér í kring með asna sína, og tvö lítil börn spígspora berfætt kringum lindina, sennilega í þeirri von, að ferðamenn, sem hingað kynnu að koma, létu eitthvað af hendi rakna við þau. Þau gætu verið 6—8 ára, kaffibrún á hömnd með blásvart, slétt hár og fríð sýnum. Öll Araba- böm eru falleg. Þessi böm eru hæversk og sýna enga áleitni, eins og títt er urn böm í Austurlöndum. Eg nota tækifærið, tek af þeim margar myndir og gef þeim aura fyrir. Hér er þetta óhætt, því engin önnur böm eru nálægt. En ég hafði áður brennt mig óþægilega á því að gefa krökkum peninga, því þá er allt orðið fullt af börnum í kringum mann áður en varir og hópurinn svo stór og aðsópsmikill, að ég hrósa happi að komast inn í bílinn aftur. Og þá berjast gríslingarnir um aurana, þeir stóm hrifsa af þeim litlu, og gjöfin verður þiggjendunum aðeins til ama. Lindin, sem rennur undan klettinum, fellur í grunna steinlagða þró, en hellum er raðað í kring. Umhverfis er garður hlaðinn úr höggnum steinum, mittishár. Dökkur Arabi með rauðleita hettu hallar sér fram á múrinn og kveinkar sér ekki, þótt ég taki mynd af honum, en margir trúa því, að það stytti ævina, varla þó meira en um 2—3 daga.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.