Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.05.1967, Qupperneq 25

Andvari - 01.05.1967, Qupperneq 25
JÓN GÍSLASON: ,Oidípús konungur' og höfundur hans i Ymsar persónur í grískum goðsögnum, hetjukvæðum og harmleikum hafa nú um aldaraðir átt öruggan þegnrétt í hug- um þúsundanna. Hver kynslóðin af ann- arri hefur risið og hnigið eins og öldur á sæ, en í öllu því brimróti hafa þessir minn- isstæðu „svipir fornaldar" aldrei færzt í kaf. Fólk hinna römmu örlaga var orðið óafmáanlegt í vitund manna eins og stór- fenglegar kynjamyndir, sem náttúran sjálf ristir í hamra eða fjallseggjar. Eilíf og al- gild lögmál lífs og breytni höfðu hér í ljóðum og sögum klæðzt svo eftirminni- legum búningi, að eigi var auðvelt um að bæta. Einna fremstur í þessum flokki ógleymanlegra örlagahetja mun vera Oidípús konungur, með því svipmóti, sem Sófokles hefur gefið honum í sam- nefndum harmleik. II Fróðlegt er að athuga, hvað vitað er um persónu Oidípúsar, áður en Sófokles fór um hana höndum. í Uíonskviðu er aðeins einu sinni vikið að Oidípúsi, i tveimur Ijóðlínum, þar sem segir, að hann hafi fallið í orustu og útfararleik- ir hafi farið fram í erfi hans(Il. XXIII 679). Samkvæmt því hefur höfundur Ilíonskviðu hvorki talið Oidípús blindan né útskúfaðan úr mannlegu samfélagi, er hann féll. Öðruvísi er þessu farið í Odysseifs- kviðu (Od. XI 271—280). Er augljóst að þar er gert ráð fyrir, að sögnin um Oidípús, eins og harmleikaskáldin segja hana síðar, sé öllum kunn. Meðal þeirra kvenna, sem Odysseifur kemur auga á í undirheimum, er Epíkasta, sem síðar var nefnd Jókasta: „Hún framdi óvit- andi þann stórglæp, að hún giftist syni sínum, en hann vó föður sinn og átti móður sína, og létu guðirnir það brátt verða heyrumkunnugt. Hann réð yfir Kadmeum í hinni unaðarsamlegu Þebu við miklar mannraunir sökum hinna meinsamlegu álaga goðanna, en hún var yfirbuguÖ af hugarsorg þeirri, er á hana stríddi, festi hún langa snöru niður frá enu háva þvertré, og fór til heimkynna hins sterka Hadesar, sem heldur harð- læstum dyrum sínum; eftirskildi hún honum allar þær margvíslegu raunir, sem Refsinornir koma til leiðar í móður- hefndir!" — Svo farast Hómer orð á þessum stað í Odysseifskviðu, í þýðingu Sveinbjarnar Egilssonar. III I þessum skuggalegu og áhrifaríku Ijóðlínum er kjarni sagnarinnar fólginn, eins og harmleikaskáldin segja hana síðar: Guðimir hafa bannað Laíosi, konungi í Þebu, að eignast börn. Ef hann eignast son, þá mun sá hinn sami að örlagadómi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.