Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.05.1967, Qupperneq 39

Andvari - 01.05.1967, Qupperneq 39
ANDVARI ÓBÓTAVERKIÐ 37 atriðum. Og það er um hana eins og tepp- ið, að hægt er að halda áfram að rannsaka hana árum saman og finna alltaf eitthvað nýtt. Þetta eru atriði, sem ekki verða túlkuð með því að endursegja söguna í stuttu máli. Sagan er oss sögð á hér um bil 350 blaðsíðum og er mjög spör á orð, og þær síður eru mjög fáar, sem hægt er að hlaupa yfir án þess að fórna einhverjum hluta þeirrar harmsögu, sem óhjákvæmlega leiðir að hátindi verksins og því, sem síðar gerist. Eg fjalla hér um mannleg og félagsleg svið sögunnar, og við þau gerir söguhöfundurinn aldrei athugasemdir. Hann skráir staðreyndir, en dregur aldrei ályktanir af þeim. PERSÓNURNAR Oss er lítið sem ekkert sagt frá öllum fjöldanum af aukapersónum, sem koma fram í þessari sögu, nema kannski að þar se um að ræða son eða frænda einhvers manns, sem ber flókið nafn, er vér höfum ekki áður heyrt og heyrum aldrei síðar. En vér vitum töluvert um aðalpersónur harmleiksins, og stuttar, lifandi lýsingar eru á útliti sumra þeirra. Sjálfur var Njáll uppnefndur „karl hinn skegglausi", af því að enginn skegg- vöxtur var á andliti hans — algengt háðs- efni óvinum hans. Engu að síður var hann myndarmaður, en gamall orðinn, þegar sagan hefst. Vér vitum eigi, hversu gamall hann var, en oft er lögð áherzla á aldur hans, og sagan nær yfir árabil. Hann var áreiðanlega fyrir löngu af bezta skeiði. Njáll var auðugur landeigandi og átti að minnsta kosti tvö stórbú, annað þeirra, Bergþórshvoll, var sviðið, þar sem sagan nær hátindi sínum. Þetta hlýtur að hafa verið stórt bú, þvi að vér vitum að heim- ilismenn voru yfir fimmtíu. Þetta er ekkert undrunarefni, því að norrænir menn reistu sér oft mjög stór hús, og í einum stað heyrum vér talað um hús, þar sem aðalskálinn var tvö hundruð fet á lengd. Elúsið mun hafa verið reist að öllu leyti úr timbri og sennilega fagurlega skreytt með útskurði. Eins og Njáli er lýst í sögunni er hann sönn ímynd roskins stjórnspekings, — vitur, mikill lagamaður, frjálslyndur og og gæddur þeim hæfileika, sem var sjald- gæfur með norrænum mönnum, að sjá fyrir óorðna hluti. Samtíðarmenn hans hugðu jafnvel að hann væri skyggn. Hjá honum var mjög leitað ráða, og gaf hann þau fúslega. Hann var einstaklega hógvær og góðlyndur maður, sem hataði ofbeldi, en var jafnframt gæddur miklu hugrekki. Hann var ákaflega örlátur, og það var hlá- legt, að þetta örlæti, einkum við óvini hans, varð ein af ástæðunum til dauða hans. Njáll tók kristni á þeim tíma, er sagan greinir ‘frá, og hann virðist vera nálega sá eini af persónum vorum, sem skilur, hvað kristindómurinn er í raun og veru. Kona hans hét Bergþóra,— hugrökk kona og ágæt eiginkona og móðir, en stolt og deilugjörn. I allri sögunni stafa illdeilur milli ætta oft frá konum, og oft eggjuðu þær menn til illverka. Húsfreyja á borð við Bergþóru naut mikillar virð- ingar og gat haft mikil áhrif á athafnir fjölskyldunnar. 'Njáll og Bergþóra áttu þrjá sonu og þrjár dætur. Auk þess átti Njáll óskil- getinn son, 'Höskuld að nafni, með konu, er Hróðný nefndist. Einhvern tíma hlýtur hún að hafa verið hjákona Njáls, eða arinelja Bergþóru, en þetta skemmtilega heiti notuðu norrænir menn. Höskuldur bjó ekki hjá Njáli eða fjölskyldu hans, heldur með móður sinni, og mynd hans er fremur óljós allt í gegn. Dæturnar þrjár gegna ekki miklu hlutverki í sögunni, og af sonunum er Skarpheðinn langmerk- astur, elztur þeirra, stór maður, og öflugur,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.