Andvari

Årgang

Andvari - 01.05.1967, Side 44

Andvari - 01.05.1967, Side 44
42 NIGEL BALCHIN ANDVABI ÞaS var ráð Skarpheðins að geía þeim líf, og ástæður hans voru skiljanlegar, því að Grani var sonur hetjunnar Gunnars á Hlíðarenda, sem verið hafði vinur Njáls og sona hans. Þessi göfugmennska hans var illu goldin, eins og oftar ber við í sögunni. Síðar gengu bræðurnir og Kári á stað- inn, þar sem Skarpheðinn hafði stokkið og sáu, að stökkið var 24 fet. Við þetta gerir Sir George Dasent svohljóðandi athugasemd: „Mikið stökk, en ekki urn- fram mannlega getu“. Auðvitað er tutt- ugu og fjögurra feta stökk á færi afburða langstökkvara með sérstaklega útbúinni hlaupabraut og stökkmarki, en það mundi hljóta að teljast ofvaxið vopnuð- um manni, sem ber öxi í hendi og stekk- ur af árbakka. Hins vegar gæti fær ís- knafctleiksmaður rennt sér fram hjá and- stæðingi sínum og klofið hauskúpu hans í einu höggi. 1 sumum ísknattleikjum virðist eitthvað slíkt vera megintilgangur leiksins. Kannski er misskilningur að taka of hátíðlega frásagnir af hetjuskap í vopnaviðskiptum. Oss er sagt, að Skarp- heðinn væri frábærlega hraustur og leikinn maður, og þarna sýndi hann það, svo að ekki varð um villzt. Njálssynir höfðu nú hefnt sín, þar sem Þráinn og Hrappur voru báðir dauð- ir; og þar sem sumir bræðra Þráins, aðrir Sigfússynir, höfðu aldrei talið hann alveg í fullum rétti í þessari deilu, gat Njáll nú boðið fébætur fyrir dráp Þráins og fengið menn til að fallast á þær. Báðir aðilar gáfu hin venjulegu heit um frið og fullar tryggðir, og deilan virtist á enda kljáð, að minnsta kosti um sinn. Hér var það að Njáll sýndi sérkenni- lega göfugmennsku sem oftar. Þráinn átti son, Höskuld að nafni, (sem ekki má rugla saman við Höskuld Njálsson). Hann var gjörvilegur, gáfaður og aðlað- andi drengur. Njáll spurði hann í heim- sókn, hvort hann vissi, hvernig faðir hans hefði dáið. Drengurinn svaraði, að hann vissi, að Skarpheðinn hefði vegið hann, en þar sem bætur hefðu komið fyrir, þyrfti ekki að ræða það mál. Samkvæmt norrænni siðaskoðun lýsti svar þetta frábærri háttvísi, og Njáll svaraði þessu til: „Betr er svarat en ek spurða“. Njáll kvað Höskuld vera manns- efni gott og tók hann til sín í fóstur. Næstu árin óx Höskuldur upp með Njálssonum, og allt sem vér heyrum frá honum sagt, gefur í skyn, að spásögn Njáls hafi rætzt. Höskuldur varð vissu- lega ágætur maður, og var honum unnað af öllum, einkum Njálssonum, að því er oss er sagt. Þeir fylgdust jafnan að. Þessi friðsæli hamingjutími hlýtur að hafa staðið nokkur ár, —■ þau ár, sem Höskuldur óx úr dreng í fullorðinn mann — og á þessum árum tók deilan gamla sig aldrei upp. Á alþingi talaði Njáll með kyrrlátu stolti um fullkomnun sáttanna og nefndi þetta dæmi um það, hverju mætti til leiðar koma með hóg- værð og góðvild; og þegar Njáll reið austur í mikilvægum erindagjörðum, fylgdu honum ekki aðeins synir hans og Kári, heldur og Sigfússynir, bræður Þráins, sem drepinn var. Þetta brýna erindi 'Njáls austur var að biðja konu til handa Höskuldi, fóstur- syni sínum. Njáll vildi fá Ilöskuldi fyrir konu Hildigunni, sem var frændkona Flosa, mikils og voldugs höfðingja. Flosi fagnaði Njáli hjartanlega og virtist í rauninni hlynntur því, að ráðin tækjust, en sjálf var Hildigunnur ung kona og skaprík. Hún setti það skilyrði fyrir gift- ingu þeirra Höskuldar, að hann hefði einhver mannaforráð í þjóðfélaginu, væri goðorðsmaður. Njáll kvaðst mundu reyna
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.