Andvari

Volume

Andvari - 01.05.1967, Page 81

Andvari - 01.05.1967, Page 81
ANDVARI UNESCO 20 ÁRA 79 þykkti árið 1948. í 26. grein þessarar yfirlýsingar segir, að hver og einn skuli eiga rétt á ókeypis barnafræðslu, og menntun umfram það eftir því sem hæfi- leikar hans segja til um, en ekki fjár- hagsleg geta eða staða innan þjóðfélags- ins. Þess ber að gæta í þessu sambandi, að í yfirlýsingunni segir ekki, að þetta sé skilyrðislaus réttur hvers og eins. Slíkt væri vart mögulegt, heldur verður hann að byggjast á fjárhagslegri getu hverrar þjóðar til að kosta þá lágmarksmenntun, sem barnafræðsla getur talizt; og síðan getu hvers og eins til að geta notið og fært sér í nyt fræðslu, þegar til æðri menntunar kemur. Hins vegar segir í yfirlýsingunni, að réttur þessi sé almenn- ur og algildur, þ. e. a. s. að þetta sé róttur hvers manns sem mannlegrar veru. Það hefur sem sé verið viðurkennt, að án uppfræðslu og menntunar geti maður- inn ekki fært sér fullkomlega í nyt það, sem í honum býr, hann geti ekki notið lífsins á eðlilegan hátt og ekki lagt sam- borgurum sínurn og þjóðfélaginu í heild það lið, sem þarf til þess að almenningur geti notið bærilegra lífskjara. Auðvitað eru enn til þjóðir, einstaklingar eða hópar manna, sem sökum ójafnaðar fortíðar- innar gera sér ekki enn fulla grein fyrir þessu. Langflestar þjóðir heims eru sér hins vegar þessa meðvitandi, og afleið- ing þessa hefur orðið hin gífurlega eftir- spurn eftir aukinni menntun og aukn- um fjölda skóla á öllum fræðslustigum. Þess ber hins vegar að gæta í þessu sam- bandi, að enda þótt réttur hvers manns til menntunar sé viðurkenndur almennt, þá jafngildir það ekki því, að slíkt geti talizt vera krafa, sem beri að viðurkenna. Slíkt hlýtur jafnan að takmarkast all- verulega a£ fjárhagsgetu sérhverrar þjóð- ar á hverjum tíma. 1 annan stað gera þær þjóðir, sem náð hafa hvað mestum pólitískum og félags- René Maheu, framkvæmdastjóri Unesco. legum þroska, sér það Ijóst, að efnahags- leg velmegun, sem skapast af tæknileg- um framförum, byggist á víðtækri al- mennri fræðslu, au'k tæknilegrar mennt- unar og þjálfunar. Við þetta bætist svo, að þær þjóðir, sem hafa öðlazt pólitískt sjálfstæði sitt á þessu tímabili, og þær telja meir en helming þeirra þjóða, sem nú eiga aðiid að Sameinuðu þjóðunum og Unesco, hafa komizt að raun um, hvert gildi menntun hefur fyrir góða og farsæla landsstjórn og þátttöku borgar- anna í opinberu lífi. Þeirri kenningu hefur sömuleiðis vaxið mjög fylgi á undanförnum árum, að út- gjöld til skóla- og menntamála séu ekki einungis eyðslufé, sem sé glatað um leið og hver og einn hefur notiÖ þess sem „neytandi", heldur sé hér miklu fremur um að ræða fjárfestingu, sem bæði ein- staklingar og þjóðir í heild eigi eftir að njóta ávaxtarins af á ókomnum árum. Þetta eru þá í stórum dráttum orsakir þeirrar miklu eftirspurnar eftir menntun,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.