Andvari - 01.01.1999, Blaðsíða 23
andvari
EINAR ÓLAFUR SVEINSSON
21
í greininni um föður sinn, sem fyrr var til vitnað. Ætli hann hafi ekki
líka verið að tala um sjálfan sig?
Ég tel hann hafa verið hamingjumann. Með þessu á ég ekki við, að lífið hafi
sparað honum erfiði og raunir, og í rósum baðaði hann aldrei. En slíkt er
ekki heldur karlmanns hamingja. Það tel ég fyrst til hamingju hans, að hann
átti þá konu, sem hann unni alla ævi; sambúð þeirra var góð, og kom honum
þaðan stöðugur ylur, sem vermdi huga hans, svo að heiðríkja mannvitsins
varð honum ekki köld (44).
Þótt Einar Ólafur Sveinsson hefði þegar sem þrítugur maður lokið
háskólaprófi og skilað fræðilegum verkum sem hefðu opnað honum
greiða leið til stöðu háskólakennara í nálægum löndum, beið hans
hér ekki neitt embætti, hvað þá rannsóknastaða. Hann varð því eins
konar lausamaður á akri fræðanna í röskan áratug. í gögnum hans,
sem Sveinn Einarsson hefur falið Stofnun Árna Magnússonar til
varðveislu, eru nokkur vélrituð blöð með minnisgreinum sem hann
hefur tekið saman árið 1967. Á þessum blöðum má glöggt sjá hve
óstöðugar tekjur hans hafa verið á þessum árum, fram til 1942 er
hann hafði verið skipaður bókavörður við Háskólabókasafn. Störf
hans öll tengjast þó fræðimennsku með einum eða öðrum hætti.
Yfirlit þetta er ekki margorðara en svo að fróðlegt má þykja að taka
Ur því nokkrar beinar tilvitnanir:
Gegndi starfi bókavarðar við Landsbókasafn í forföllum Hallgríms Hall-
grímssonar á árinu 1930, 3 mánuði, að ég ætla (ekki minna). Annaðist há-
skólakennslu og önnur deildarstörf Sigurðar Nordals . . . vormissirið 1931,
veturinn 1931-32, haustmissiri 1933 . . . Gegndi störfum háskólaritara í veik-
indum hans, ég held tvívegis, stuttan tíma í hvort sinn. Stjórnaði leshring
menntaskólanema í bókmenntum einn eða tvo vetur að beiðni rektors
(greitt af skólanum). Vann fyrir Háskóla íslands að skráningu og röðun bóka
Finns Jónssonar frá og með desembermánuði 1934 til 17. júlí 1935. Fyrir þetta
var mér greitt af Háskóla íslands . . . 3700 kr. . . . Settur fyrsti bókavörður
við Landsbókasafn í fjarveru Þorkels Jóhannessonar frá 1. október 1935 til
31. marz 1936 . . . Mér skilst, að ég hafi frá sumri 1935 eða a.m.k. frá 31. marz
1936 til loka árs 1936 annazt bókavörzlu Heimspekideildar og hafi verið
greitt fyrir af Háskólanum. Eftir það var fé veitt á fjárlögum „til bókavörzlu
Háskólans“: [1200 krónur á ári 1937, 1938,1939] . . . Flutti bækur Háskólans
úr Alþingishúsinu í Háskólabygginguna í ágúst - september 1940. Fjárlög
fyrir 1940, til bókavörzlu 1200 kr. Þessi ár (1937-40) fékk ég á fjárlögum
styrk til ritstarfa, kr. 1800,oo hvert ár. Fjárlög fyrir 1941, til bókavörzlu 1200
kr. Háskólabókasafn opnað 1. nóvember 1941. Fjárlög fyrir 1942, til bóka-
vörzlu 6000 kr., til ritstarfa 800 kr. Skipaður Háskólabókavörður 1. apríl