Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1999, Side 144

Andvari - 01.01.1999, Side 144
142 BIRNA BJARNADÓTTIR ANDVARI Maðurinn er „Guðbergur Bergsson“ og hann hefur afráðið að gera upp- runa sinn að viðfangsefni í ritverki um föður, móður og dulmagn bernsk- unnar. Eins og eftirfarandi skilgreining hans á upprunanum ber með sér, er verkið ekki hefðbundin sjálfsævisaga: „Uppruni manns er alls staðar og hvergi, en hann er jafnan að finna í hugsuninni og orðunum.“2 Lesandinn er líka minntur hvað eftir annað á þá endursköpun forms og innihalds sem hér um ræðir. Þegar í inngangi verksins má finna eftirfarandi orð: „Þetta verk er sagnfræðilega rangt. Því er einungis ætlað það hlutverk að vera nokkurn veginn rétt, tilfinningalega séð, hvað höfundinn varðar. Þetta er því skáldævisaga.“ Þessi orð finna samhljóm í öðrum, þeim sem finna má skömmu síðar og varða einnig vilja höfundarins og ætlun: Hann segist vilja skapa hliðstæðu við hið liðna í minningu foreldra sinna í rituðum orðum. Ævisögur, segir hann jafnframt í inngangi verksins, eru strangt á litið ekki til, því „fátt glatast jafn algjörlega og ævi manns, þannig að aðeins er hægt að færa í letur löngun hans til að varðveita andblæ hennar í orðum“. Maðurinn er kominn aftur rúmlega hálfri öld eftir að atburðirnir áttu sér stað sem hann vill ganga inn í að eigin vild. Móðir hans er látin, faðir kom- inn á ellheimili og lífið, segir hann, fokið að mestu út í veður og vind. En hvað vill hann finna? Maðurinn segist ekki vilja finna neitt sem er glatað. Við leitum, segir hann, sjaldan að öðru en því sem óþarft er að finna. „Eg leita að sögum sem ég veit að finnast ekki í sinni réttu mynd, enda hef ég aldrei týnt þeim heldur breytt; hins vegar verður að færa þær úr sínu eðlilega huglæga efni í óeðlilegan búning málsins“ (16). Þessi maður vill finna sögur til að endur- segja og sögurnar eru í þremur hlutum um föður, móður og dulmagn bernskunnar. En líkt og mörk skáldskapar og veruleika geta ekki kallast skýr í þessu verki, eru kaflaskiptin ekki ströng. Sögusviðið er ekki heldur eitt og óskipt, á sama hátt og tími þess er ekki einleikinn. Maðurinn spyr líka í anda þess sem vill öðlast andlegan þroska og sjálfstæði seinna í lífinu, óhræddur að eigin sögn við hin helgu vé goðsögunnar um foreldrana: En hver er faðir minn? Hver er móðir mín? - til þess að geta fundið sína eigin leið. En hvað er andblær af ævi manns? spyr lesandi forviða. Hvað er skáld- ævisaga? Er þetta verk kannski náskyldara listinni en lífinu? Hvernig eru þessi mörk hugsuð? í gjörvöllu höfundarverki Guðbergs Bergssonar má greina þrotlausa hugsun um mörk lífs og listar. Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar er því ekki einstætt verk hvað efnistök Guðbergs varðar, heldur má þar greina margar af helstu spurningum skáldskapar hans sem og þá fagur- fræðilegu afstöðu sem þær spretta af. Orðin um upprunann hér að framan, hvernig hann er alls staðar og hvergi en hvernig hann er jafnan að finna í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.