Andvari - 01.01.1999, Page 125
andvari
HVAÐ ER RÓMANTÍK?
123
hugmyndir Eggerts hafi í mörgum tilvikum fallið vel að rómantískum sjón-
armiðum.57
Eg vil hér hnykkja á þeirri röksemdafærslu með því að benda á að alhæf-
ingar um rómantíkera og klassísista gilda auðvitað ekki um öll skáld sem
menn kjósa að kalla þessum heitum. Kannski gilda þær ekki um neitt
þeirra, enda hefur einræktun skálda aldrei komist á dagskrá. Það er líka
þess vegna sem við getum ekki vikið okkur undan þeirri kvöð að velta sí-
fellt fyrir okkur stöðu einstakra skálda í bókmenntasögunni. «Hvað eigið
þér við með rómantíh og hvers vegna kallið þér mig rómantíker?» spurði
danskur rithöfundur árið 1868 og vissi ekki hvort hann ætti að skilja um-
mæli gagnrýnanda nokkurs um sig sem lof eða last.58 Ekki er vitað til þess
að svör hafi fengist. Sjálfsagt fæst heldur aldrei nein endanleg skilgreining á
hugtakinu rómantík;, né heldur viðurkenndar aðferðir til að draga skáld í
bókmenntalega dilka. Það má jafnvel draga í efa að slíkt sé takmark í sjálfu
sér. Það hlýtur hins vegar að vera markmið þeirra sem skrifa og lesa um ís-
lenskar bókmenntir 19. aldar að reyna að átta sig á þessu margræða og erf-
iða hugtaki sem er einu sinni eitt af lykilorðum bókmenntasögunnar.
TILVÍSANIR
1 Grein þessi er að stofni til fyrirlestur sem haldinn var á Málþingi um rómantík á vegum
Félags íslenskra fræða í Reykjavík, 21. ágúst 1998.
j Benedikt Gröndal. «Um skáldskap,» Ritsafn IV. Reykjavík 1953, 228.
Gunnar Karlsson. «Spjall um rómantík og þjóðernisstefnu,» TMM 1985/4, 449-50.
5 Arthur O. Lovejoy. «The Discrimination of Romanticism,» PMLA 1924/2, 232.
Paul de Man. «Worthsworth and Hölderlin,» The Rhetoric of Romanticism. New York
1984, 49.
Páll Valsson. «íslensk endurreisn,» Islensk bókmenntasaga III. Reykjavík 1996, 288 og
víðar.
Sigurður Nordal. «Tvær miklar skáldsögur,» Lesbók Morgunblaðsins 1940, 371. Sjá einnig
Samhengi og samtíð III. Reykjavík 1996, 114.
Kolbrún Bergþórsdóttir. «Að eiga athvarf í minningum,» TMM 1991/2, 103.
Ólafur Jónsson. «Eftir formbyltingu. Um sögu samtímabókmennta,» Líka líf. Reykjavík
]o 1979, 122.
Benedikt Gröndal. «Um skáldskap,» 232.
Friedrich Schlegel. ««Athenaums»-Fragmente,» Kritische und theoretische Schriften.
n Stuttgart 1978, 91.
Sbr. Dagný Kristjánsdóttir. «Finnes det en stjerne bak skyene? Om Jónas Hallgrímssons
romantiske forfatterskap,» Nordische Romantik. Basel 1991, 455.
René Wellek. «The Concept of Romanticism in Literary History,» Concepts of Criticism.
London 1971.
15 Eysteinn Sigurðsson. Bólu-Hjálmar. Reykjavík 1987, 272-73.
Sbr. Þórir Óskarsson. «Hjálmar í Bólu og rómantíkin,» Andvari 1988, 113-124; Eysteinn
Sigurðsson. «Alþýðuskáld og rómantík,» Andvari 1989, 157-165.
Sbr. ýmsar greinar Paul de Man í The Rhetoric of Romanticism.