Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 81
ANDVARI
Kringum þjóðfundinn 1851
77
frá mér og konu minni til yðar liágöfgi, yðar ágætu frúar og
allra yðar.
Reykjavík, 5. marz 1850.
Auðmjúklegast undirgefinn og háður.
H. Arnesen.
P. S. Eg má ekki ganga fram hjá þeirn sannindum, að
stúdentarnir í Prestaskólanum hafa'tekið mjög skynsamlega af-
stöðu gagnvart þessum lítt lofsverðu hræringum og haldið sér
alveg utan við þær.
H. Arnesen.
Til innanríkisráðherrans
Rosenörn.
Laugarnesi, 5. marz 1850.
Eláttvirti ráðherra!
Göfugi maður! Meðtak mínar innilegustu þakkir fyrir bréf
yðar með póstskipinu. Eg hvorki get né vil nota mörg orð til að
tjá yður, hvað það gladdi mig, en gerði mig einnig hrærðan að
skynja þar enn þann góðvilja, sem þér heiðruðuð mig með að
syna mér. Það var raunar skammur tími, sem eg naut þeirrar
gæfu að vera í návist yðar, en þessi tími verður ógleymanlegur
einkum fyrir mig, og hann mun alltaf kalla fram í hugann
kærar og hugljúfar endurminningar, og þegar eg lít á þau dýr-
mætu vináttujarteikn, þá skrýðir hugurinn þessar endurminn-
ingar slíkum ljóma, sem það æðsta og dásamlegasta.
Guð gefi, að yður og yðar kæru fjölskyldu vegni betur hér
en á Islandi. Eg óska þess og vona það af öllu lijarta, að allt
gott verði einnig hlutskipti yðar.
I þessari ósk og von býr huggun mín gegn því að haía misst
niikilsmetinn og hjartkæran embættisbróður. Mér var engan
veginn glatt í gcði, þcgar þér fóruð, því að það lagðist í mig,