Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 64
60
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
Þórshöfn, sem þeir Kyhn höfðu líka sótt til verzlunar, væri lög-
giltar úthafnir. Árið 1806 veitti rentukainmerið firmanu 0rum
& Wulff, er nú hafði eignazt Húsavíkurverzlun, leyfi til að
reka verzlun á Raufarhöfn, en neitaði því hins vegar um
einkaleyfi til verzlunar þar. Yar þetta leyfi veitt vegna örðug-
leika manna þar nyrðra að sækja verzlun til Húsavíkur. Má
af bréfagerðum þessum ráða, hversu ófrjáls verzlunin var, ef
nokkuð skyldi breyta út af fastri og fornri venju. Þó má
fullyrða, að Húsavíkurverzlun þurfti ekki sérstakt leyfi til þess
að reka kaupskap á Raufarhöfn, enda er bréf þetta frá 1806
ugglaust sprottið af einokunarviðleitni 0rum & Wulffs, er
stjórnin vildi ekki styðja. Leið svo til 1819, en þá var Raufar-
höfn löggiltur verzlunarstaður til reynslu fyrst um sinn um
tvö ár. Löggilding þessi var síðan framlengd reglulega á tveggja
ára fresti til 1833. Hinn 14. des. þetta ár var „fyrrverandi faktor
hjá 0rum & Wulff, Jakohi Johnsen", veitt veitt leyfi til að
stolna l’asta verzlun á Raufarhöfn og árið 1835 var honum mæld
verzlunarlóð þar á staðnum. Þegar til amtmanns kom, þótti hon-
um lóðin vera of stór og vildi ekki samþykkja með öðru móti
en því, að Jakob væri skyldaður til að láta helming lóðarinnar
al hendi, ef þörf gerðist vegna annarra verzlana, er þarna kynni
að rísa. Fellst rentukammerið á þetta. Mun rétt að líta svo á,
að með þessu væri Raufarhöfn formlega löggiltur verzlunarstaður.
Þótt svo væri kallað, að Jakob Johnsen stofnaði verzlun á
Raufarhöfn 1834—1835, er vafalaust, að hér stóðu húshændur
hans, 0rum & Wulff, að haki, en af einhverjum ástæðum hefir
það þótt hentara að heita öðrum fyrir verzlunarstofnun þessa. Rak
firmað 0rum & Wulff síðan verzlunina á Raufarhöfn til árs-
ins 1845, en þá var hún seld Chr. Thaae. Rak Tliaae verzlun
og útgerð á Raufarhöfn um langt árabil, auk þess sem hann
rak verzlun á Siglufirði frá 1845 og í Hofsósi frá 1852, sem fyrr
er ritað. Árið 1860 hóf Bjarni Þorsteinsson frá Bakka í Bakka-
firði verzlun á Raufarhöfn og stóð svo til 1869. En árið 1870
eru þeir hættir háðir, Thaae og Bjarni, að hafa fasta vcrzlun a