Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 84
80
Aðalgeir Kristjánsson
ANDVARI
andi löndum, hefði það orðið hin mesta hjálp. Það skiptir einnig
nokkru, hvemig málin standa í Danmörku sjálfri; ef stjórnin
skyldi enn vera óömgg, em allar líkur á, að hér verði fullkomið
stjómleysi.
Bréfið er frá Helga Thordersen biskupi.
Niðurlag vantar.
Reykjavík, 9. marz 1850.
Yðar hágöfgi, herra innanríkisráðherra v. Rosenörn, riddari
af Dannebroge.
Þar sem póstskipið er í þann veginn að sigla héðan, hripa
eg niður þessar línur, til að votta yðar hágöfgi innilegasta og
auðmjúkasta þakldæti fyrir þann tíma, sem eg fékk tækifæri
til að kynnast yður sem undirmaður yðar, og jafnframt að óska
yðar hágöfgi til hamingju með hina nýju og háu stöðu, sem
aftur hefir opnað yðar hágöfgi starfsvettvang, þar sem allir rétt-
látir rnenn vænta góðs af störfum yðar með tilliti til mála ætt-
jarðar rninnar, og það á þeirn tíma, sem allar líkur benda til, að
muni ráða miklu um forlög ættjarðarinnar á komandi tímurn,
en eins og nú horfir virðast þau vera í nokkurri óvissu, þar
sem samhandstillögumar virðast hafa tekið ranga stefnu að mínu
áliti, sem hér er þeim mun hættulegra, þar sem svo litlu mót-
vægi er hægt að tefla fram.
Að því er sjálfan mig snertir, get eg ekki, án þess að finna
til vonleysis, eða í öllu falli nokkurs dapurleika, horft fram
til ókominna tíma; en allt getur breytzt og í þeirri von og
við þá hugsun linn eg helzt huggun. Sjálfur er eg nú í embætti,
sem eg hefi sótt um og óskað að gegna, og það varð mér
hin mesta gleði að fá þessa ósk uppfyllta, því að eg taldi
víst, að allt yrði áfram eins og það var áður, þegar eg gegndi
embættinu fyrir annan. Auk þess var fjölskylda konu minnar
hér, en Skaftafellssýsla hefði orðið mér allt of erfið, þegar tímar