Andvari - 01.01.1958, Qupperneq 94
90
Þorkell Jóhannesson
ANDVAHI
miða við, er nú rniklu stærri og sundurleitari en fyrrum. Þetta
á sérstaklega við um Andvara, sem á síðari árum hefir komið
út í yfir 8 þús. eintökum. Það er að sjálfsögðu óleysanleg þraut
að gera 6—7 arka hefti af slíku riti þannig úr garði, að fullnægi
svo stórurn og að sjálfsögðu sundurleitum lesendahópi. Það er
heldur ekki neitt leyndarmál, að þetta hefir engan veginn
heppnazt. Eg skal auðvitað engu spá um það, hversu Andvara
í sinni nýju rnynd muni takast að ná athygli allra sinna rnörgu
lesenda, en hitt er ljóst, að hann ætti að geta náð til miklu
fleiri manna á um 300 bls. en á um 100 bls. áður. Hér ætti að
rnega koma að rniklu fjölbreyttara efni. Og með nokkru stærra
hroti er auðveldara að koma að myndum til þess að létta undir
hið ritaða mál, gera það ljósara og aðgengilegra.
Þegar litið er til þess efnis, sem Andvari hefir flutt á liðnum
árum, ber þar — auk ævisagna og ritgerða um stjórnarbaráttuna
— mikið á ritgerðum urn ýmis söguleg efni, einkum varðandi
Islandssögu. Hér birtust ferðasögur próf. Þorvalds Thoroddsens,
er síðar urðu uppistaða í Ferðabók hans, er út kom í Kaup-
mannahöfn í 4 bindum á árunum 1913—1915 og er nú ein
hin torgætasta bók þessa stórmerka fræSimanns og keppikefli
allra bókasafnara. Þá ber hér að nefna skýrslur dr. Bjarna
Sæmundssonar um fiskirannsóknir í hafinu umhverfis ísland,
er birtust í Andvara á árunurn 1896—1936, stórmerkar ritgerðir,
sem hafa mikið gildi enn í dag. Hér má enn telja ritgerðir
Barða þjóðskjalavarðar Guðmundssonar um Njálssögu, sem nu
hafa verið gefnar út í bókarformi á vegum MenntamálaráSs.
Þá má ekki gleyma safni því af ævisögum, sem birzt hafa i
Andvara að kalla má með fastri reglu síðan áriS 1880. Var
ævisaga Jóns Sigurðssonar, eftir Eirík Briem, síðar prófessor, fyrsta
ævisagan, sem í Andvara birtist. Var bæði, að hér var vel af
stað farið, enda varð þetta efalaust vinsælasti efnisþáttur Andvara
og hefir svo verið allt til þessa dags, þótt auðvitað hafi sögur
þessar mis-fengmiklar orðið. Hér verður ekki frekar lýst efni,