Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 95
ANDVARI
Andvari
91
sem Andvari hefir flutt, enda geta menn glöggvað sig nokkuð
á því, með því að kynna sér efnis- og höfundaskrá Andvara
1915—1958, sem birt er í þessu hefti ritsins.
Þegar litið er til þess, sem nú var sagt, og jafnframt í huga
haft, hver verða muni viðfangsefni Andvara í framtíðinni, er
augljóst, að hér er um að ræða efnisþætti, sem hvert þjóðlegt
tímarit íslenzkt hlýtur alltaf að hafa á efnisskrá sinni. Saga
landsins, landið sjállt og bókmenntir þjóðarinnar að fornu og
nýju eru sígild viðfangsefni. Sama gildir urn atvinnu- og fjár-
efni þjóðarinnar í nútíð og framtíð. Andvari mun hér eftir sem
hingað til láta sér annt um allt þetta. En hér kemur að sjálf-
sögðu margt fleira til greina. Á okkar dögurn varðar miklu að
menn eigi þess kost að kynnast margvíslegum nýjungum á sviði
tækni og náttúruvísinda. Við eigum nú á að skipa vel mennt-
uðum mönnum í slíkum fræðum, langt um fram það sem gerðist
fyrrum. Andvari mun líka framvegis gera sér far um að fá
ritgerðir urn slík efni til birtingar, eftir því sem föng verða til.
Hér má einnig nefna mál, sem varða samskipti þjóða og sam-
vinnu í ýrnsum greinum, sem fáir vita lull skil á, en er eitt af
markverðustu táknurn vorra tíma. Þátttaka Islendinga í alþjóða-
samvinnu fer nú sívaxandi og varðar því ekki litlu, að þjóðin
geri sér sem fyllsta grein fyrir þeim skyldum, er þessu fylgja,
og þá líka fyrir því hagræði, sem hér mætti af hafa.
Þar sem Andvari er og verður tengdur stærsta bókafélagi
landsins og útgáfufyrirtæki, er eðlilegt og í rauninni sjálfsagt,
að hann láti bækur og bókaútgáfu til sín taka eftir því sem föng
verða til og rúm leyfir. íslendingar eru hneigðir til bóka og
bóklestrar, svo sem ráða má af því, hversu rnikið er prentað af
bókum á landi hér ár hvert. Lætur því að líkum, að þörf sé á
því, að menn eigi kost á nokkru yfirliti um bækur, sem út konra,
svo að þeir eigi hægra með að átta sig á því, hvað í boði sé, og
nokkrum fróðleik um bækur og höfunda, þótt líklega verði hér
frernur um ritfregnir að ræða en reglulega ritdóma. Gömlu