Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 79
ANDVARI
Kringum þjóðfundinn 1851
75
sókninni; enda þótt það sé nokkur huggun fyrir hann, að slíkt
fólk eigi hér hlut að rnali, þá er staða hans orðin uggvænleg,
og það því fremur sem lítið hefir verið haldið uppi vörn fyrir
hann af réttum aðiljum. Eg heli ráðið honunt til, ef svo skyldi
vilja til, að sækja um rektorsembættið upp á von og óvon, en
hvort hann gerir það veit eg ekki. I öllu falli hefir hann, svo
lengi sem faðir hans er á lífi, reyndan ráðgjafa við hlið sér.
Dr. Egilsen vinnur sér tæplega aftur ást og virðingu skólans og
án þess að hafa annað hvort getur enginn skólastjórn gengið vel.
Johnsen, sem er settur amtmaður, er nrjög vinsæll og sjálf-
stæður í starfi sínu. Eg hefi viljað vera honum til þeirrar hjálpar,
sem er í mínu valdi að veita honum, en ef hann hefir hafið
samvinnu við biskupinn, er það síður nauðsynlegt.
Eg vona og bið, að yðar hágöfgi fyrirgefi mér náðarsamlegast
það, sem eg hefi skrifað.
Svo fel eg mig á hendur yðar hágöfgi og hið yður að bera
hennar náð, konu yðar, hinar innilegustu kveðjur frá mér og
konu minni.
Yðar hágöfgi lotningarfyllst háður
Th. Sveinhjörnsson.
Yðar hágöfgi hr. innanríkisráðherra v. Rosenörn riddari af Danne-
broge m. m.
Enda þótt því sé fjarri, að eg geti þakkað yður eins og eg
vildi og ætti að gera fyrir hinn margþætta góðvilja, sem eg varð
aðnjótandi þann tíma, sem eg naut þess að vera í návist yðar,
er eg samt svo djarfur að skrifa yður þessar fáu línur.
Hvað viðvíkur þeim miður skemmtilegu atburðum, sem hér
hafa gerzt, síðan yðar hágöfgi fór frá Islandi (eg á við uppþot
skólapilta gegn Egilsen rektor og mótblástur saínaðarins gegn
Johnsen prófasti) get eg verið næsta stuttorður, því að eg tel
það víst, að frá þessu muni verða skýrt rækilega, en vil þó leyfa