Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 32
28
Níels Dungal
ANDVARI
hefði lengur verið lialdið áfram að byggja af handahófi og
Reykjavík og aðrir bæir orðið ljótir útlits. Sjálfur fór G. H. til
rnargra þorpa, sem hann sá að voru líkleg til þess að stækka
ört, eins og t. d. til Hveragerðis, og gerði skipulagsuppdrætti
að því, hvernig hyggja skyldi í framtíðinni. Mörgu hafa upp-
drættir hans bjargað, en því miður hefir ekki ávallt verið farið
eftir þeim sem skyldi.
Mannamælingar. I starfi sínu scm háskólakennari í líffæra-
fræði komst G. H. lljótt að raun um, að alla undirstöðuþekk-
ingu vantaði í íslenzkri mannfræði (anthropologi). Við vissum,
eða töldum okkur vita, að íslenzka þjóðin væri mestmegnis
komin lrá Noregi, en allar vísindalegar rannsóknir á líkams-
byggingu fslendinga vantaði. Hins og endranær sagði G. H-
engum öðrum að gera það, lieldur tók til að undirbúa að gera
slíkar rannsóknir sjalfur. Það kann að sýnast einfalt verk að
mæla fólk, en í rauninni eru slíkar mælingar mikið nákvæmnis-
verk, útheimta glögga þekkingu á mörgum hlutum og geysimilda
útreikninga. G. HI. fékk sér bækur, hverja af annarri, og las og
las, unz hann taldi sig hafa næga undirstöðu til þess að leggja
út í þetta verk. Það tók hann rnörg ár. Og á árunum 1915—1919
rnáttu saklausir menn, sem gengu um göturnar í Reykjavík, búast
við því, að fullorðinn rnaður sneri sér að þeim og segði: „Fyrii'
gefið þér, maður minn, en er ég búinn að mæla yður?“ og ef
maðurinn svaraði neitandi, þá tók G. H. bann traustataki og
fór með hann inn í stofu í Alþingishúsinu, þar sem maðurirm
var látinn klæða sig úr hverri spjör og síðan var hann veginn
02 mældur á alla enda og kanta. Þetta var býsna tafsamt verk,
en hitt var þó miklu meira, sem eftir var, að vinna úr öihun
tölunum. Þá voru engar reikningsvélar til og G. II. varð að
reikna allt á blöðum. Þetta var svo geysilegt verk, að G. H-
sagði mér seinna, að hann hefði verið að því kominn að hætta
við það, m. a. af því að svo mikla stærðfræðiþekkingu hefði
þurft til, að hann hcfði alveg sprungið á því, ef hann hcfði