Andvari - 01.01.1940, Blaðsíða 15
aNDVARI
Jón Baldvinsson
11
Skólamenntun, umfram barnafræðslu, fékk Jón enga um
ævina. Hann dvaldi stuttan tíma við nám hjá séra Sig-
urði Stefánssyni í Vigur, skömmu eftir ferminguna. Séra
^igurði fannst mikið til um, hve greindur og námfús Jón
var, og var hann því, að áeggjan séra Sigurðar, ráðinn til
Skúla Thoroddsens til prentnáms í prentsmiðju Þjóðviljans
á ísafirði, tæpra fimmtán ára gamall. Síðan dvaldi Jón í
rúm 8 ár á heimili Skúla Thoroddsens, bæði á ísafirði og
^essastöðum, unz hann réðst prentari hjá prentsmiðjunni
^utenberg í Reykjavík, skömmu eftir að hún hafði tekið
til starfa, en það var í ársbyrjun 1905.
Dvöl Jóns á heimili Skúla Thoroddsens hlaut að hafa mikil
úhrif á framtíð hans. Hinn námfúsi sveinn notaði marga
stund utan ákveðins vinnutíma til þess að afla sér bóklegrar
nienntunar. Buðust honum þarna ýmis tækifæri, sem hann
notaði vel. Á heimili Skúla voru jafnan heimiliskennarar.
Völdust oftast til kennslunnar námsmenn, sem langt voru
koninir í skóla, og var því venjulega um miklu betur lærða
kennara að ræða þar en barnakennarar voru þá yfirleitt.
t^anska tungu nam Jón af bókum einum, tilsagnarlaust, en
annars mun hann hafa notfært sér tilsögn heimiliskennar-
anna að ýmsu leyti. Hvað menntun Jóns viðvíkur að öðru
leyti, verður að hafa í huga, að hann starfaði í 21 ár við
Prentiðn, en það er kunnugt, að prentarar eru bezt mennt-
nðir allra iðnlærðra manna á íslandi. Prentarastéttin hefir
°rð fyrir það um allan heim að skara fram úr öðrum iðn-
nðarstéttum um menntun, enda hafa margir bezt menntuðu
foringjar lýðsins komið úr þeirri stétt. Þess má geta sem
úæmis um atorkusemi Jóns við að afla sér menntunar, að
hann lærði enska tungu eftir að hann var kominn á efri
ár.
Auk þeirrar menntunar, sem Jón aflaði sér á þessu á-
gætisheimili, hlaut hann að verða fyrir mjög margvíslegum
°g sterkum áhrifum þar. Hjá því gat varla farið, að
^ngur maður, sem var jafn lengi undir handarjaðri Skúla
Thoroddsens og fékkst við að prenta Þjóðviljann, hlyti að