Andvari - 01.01.1940, Blaðsíða 96
92
Baldur Bjarnason
AXDVARI
svo frábrugðnir Finnum að ætla má, að þeir hafi verjð
norður-mongólskur þjóðflokkur, sem hafi tekið upp finnskt
mál, er Finnar komu austan að. Finnsku þjóðirnar greinast
í tvær kynkvíslir eftir málum, hina finnsku og hina úgrísku.
Til hinnar úgrísku teljast Magyarar og Vogúlar og Ostjakar
nyrzt og vestast í Síberíu, en allar hinar þjóðirnar teljast
til hinnar finnsku greinar. Mál þessara þjóðflolcka eru inn-
hyrðis náskyld, en ekki hefir tekizt að finna skyldleika níeð
þeim og öðrum málum. Sumir telja þó, að finnsku málin
séu skyld tyrknesku, en ekki er það sannað mál. En af
þessu hefir leitt, að finnsk-úgríslcu þjóðirnar hafa verið
laldar til Mongóla, enda þótt þær í útliti beri lítinn keim
Asíu-manna. Áður fyrr hafa finnsku þjóðirnar byggt meiri
hluta hins núverandi Rússlands, en eftir að slavnesku þjóð-
flutningarnir hófust á 6. og 7. öld, hafa þær smám saman
runnið saman við Rússa og tekið upp mál þeirra og menn-
ingu. Hinar núlifandi finnsku þjóðir eru því aðeins leifar
af feiknastórum þjóðbálki, sem áður hefir byggt mikinn
hluta Evrópu, en hefir á síðustu öldum runnið saman við
aðra þjóðflokka og er nú horfinn að mestu.
Því nær allar finnskar þjóðir, sem í Rússlandi búa, eru
menningarsnauðar, en Finnlendingar standa í menningu
Norðurlandaþjóðunum jafnfætis og eru því ásamt Magyörum
og Eistlendingum laukar ættar sinnar. Því af þeim 10—20
þjóðum eru þessar þrjár þær einu, sem náð hafa sama stigi
menningar og menntunar og Vesturlandamenn. Finnar eru
þó fremstir þessara þjóða í flestu og ber margt til þess og
þó einkum lega landsins, þar sem Finnland liggur að hinum
hámenntuðu, skandínavisku löndum. Finnland hefir verið
byggt i margar árþúsundir. Fornleifafundir sýna glöggt, að
strendur þess og eyjar hafa frá ómunatíð verið byggðar
norrænum mönnum, sennilega allan tímann frá yngri stein-
öld. Verkfæri og búsáhöld og híbýlahættir hafa verið sams
konar og í Svíþjóð og beinagrindur og höfuðskeljar, sem
fundizt hafa, sýna, að strandabúar og eyjaskeggjar Finn-
lands hafa alla tíð verið hávaxnir og grannir langhöfðar af