Andvari - 01.01.1940, Blaðsíða 89
ANDVARI
Rannsóknarnefnd ríkisins
85
arfélöguni, sem vildu tryggja sér aðstöðu til mikillar mó-
''ánnslu sumarið 1940. Eftir að stríðið hófst, fól ríkisstjórnin
Refndinni margs konar rannsóknir viðvíkjandi aðsteðjandi
vandamálum, þar sem siglingaleysi vofði yfir landinu. Mátti
heita, að nefndin væri þá um nokkra mánuði ráðunautur
1-íkisstjórnarinnar um margháttaðar úrlausnir, er lutu að
þvi að tryggja þjóðinni fæðu og eldsneyti.
Híkisstjórn og Alþingi fundu, að mikil þörf var á, að
rannsóltnarnefndin hefði örugga aðstöðu og húsbóndavald
Um rannsókn á náttúru landsins. Varð það til þess, að nefnd-
m fékk tvö ný verkefni, annað með samkomulagi, hitt með
íöggjöf.
Með lögum um Menntamálaráð og menningarsjóð frá 1928,
var Menntamálaráði fengin til náttúrufræðirannsókna þriðj-
ungur af öllum áfengissektum á landinu. Síðan var þessu
breytt á þann hátt, að ríkissjóður tryggði menningarsjóði
50 þús. kr. tekjur ár hvert. Og þriðjungi þess fjár skyldi
varið til að rannsaka náttúru landsins. Menntamálaráð tók
Þá ákvörðun, eftir að rannsóknarnefnd ríkisins var skipuð,
að fela henni framkvæmd á meðferð þessa fjár að veru-
legu leyti, með því að rannsóknarnefndin hefði betri að-
stöðu til að samræma þær rannsóknir, sem gerðar kynnu
uð vera fyrir fé frá menningarsjóði, við aðrar og víðtækari
rannsóknir. Sumarið 1939 lét rannsóknarnefndin athuga
skilyrði til járnvinnslu í fjalli á Vestfjörðum, sem ,,bar-
únsmálið“ stóð um. Hefir ríkisstjórnin nú gögn í hönduin
Uni það, hversu skilyrði eru þar til námuvinnslu, ef það
niál þykir timabært að koma á dagskrá aftur. Enn fremur
lét nefndin gera ýmsar aðrar rannsóknir fyrir fé frá menn-
ingarsjóði, auk þess sem allmargir menn héldu áfram með
sluðningi menningarsjóðs rannsóknum, er þeir höfðu áður
bafið. En nú senda þeir allir niðurstöður athugana sinna
til rannsóknarnefndarinnar, og verða þær þannig samræmd-
ar við aðrar rannsóknir, eldri og yngri, og hægt að koma
við sameiginlegum athugunum á niðurstöðum allrar fræði-
legrar vinnu að náttúruvísindum á íslandi.