Andvari - 01.01.1940, Blaðsíða 86
ANDVARI
Rannsóknarnefnd ríkisins.
Eftir Jónas Jónsson.
Nokkrum árum eftir að ísland félck yfirráð fjármála sinna,
byrjaði Alþingi að veita ungum og mjög efnilegum jarð-
fræðingi, Þorvaldi Thoroddsen, árlegan styrk til að rann-
saka náttúru landsins. Þorvaldur ferðaðist um byggðii' og
óbyggðir sumar eftir sumar og lagði grundvöll að nútíma-
þekkingu manna á náttúru íslands. Hann ritaði jafnót.t
um rannsóknir sínar i erlend vísindarit. En hann gaf lönd-
um sínum í Andvara ár hvert glögga yfirlitsskýrslu urn
ferðir sínar. Það var góður siður og mjög til fyrirmyndar.
Sá náttúrufræðingur, sem fetaði næst í fótspor Þorvaldai
Thoroddsens, Bjarni Sæmundsson, fylgdi fordæmi fyrirrenn-
ara síns í þessu efni.
Tímar eru nú breyttir á margan hátt. Nú er hér á landi
enginn einn maður, er ber höfuð og herðar yfir alla saxn-
tíðarmenn í þessu efni. En nú stunda allmargir menn rann-
sóknir á náttúru landsins, og á síðustu árum hafa flen'i
ungir menn heldur en tíðkazt hefir fyrr tekið að stunda
vísindalegt nám í náttúrufræði við ýmsar erlendar mennta-
stofnanir. Það má þess vegna gera ráð fyrir, að á næstu
árum fjölgi til mikilla muna þeim íslendingum, sem fóst
við náttúrufræðilegar athuganir hér á landi.
En auk íslenzkra náttúrufræðinga voru erlendir fræði-
menn meir og meir að venja komur sínar hingað, og er
það í sjálfu sér ekki undarlegt, af því að ísland er vafa-
laust langsamlega fjölbreyttast sýnishorn í jarðfræðiefnum
af öllum löndum álfunnar. En auk viðurkenndra vísinda-
manna, var ástæða til að halda, að sumir af hinum erlendu
gestum kæmu í þeim tilgangi að kynna sér náttúrugæði