Andvari - 01.01.1940, Blaðsíða 53
andvabi
Hin nýja bókaútgáfa
49
S°ð um framgang þessa fyrirtækis. Hinn mikli kaupenda-
fjöldi sýnir hug þjóðarinnar. Menn vilja fá miklar bækur
°8 góðar bækur og eiga þær á heimilum sínum. Vafalaust
verða einhver mistök um svo margþætt fyrirtæki, auk þess
sem vonlaust má telja að gera svo öllum líki. Til þess getur
enginn ætlazt. En ef rétt er stefnt í aðalatriðum og tekið
tillit til reynslu og árekstra, þarf ekki að kvíða framtíð þess-
arar útgáfustarfsemi. Borgarar iandsins eru búnir að lýsa
yfir eindregnu fylgi við tilgang hennar.
Utgáfustjórnin hefir fyrst og fremst aðalstuðning sinn í
hinni miklu sölu. Hún treystir auk þess framvegis á þegn-
fkap hinna mörgu útsölumana, að þeir dreifi bókum og
innheimti andvirði þeirra fyrir miklu lægri þóknun heldur
en annars er títt að greiða hér á landi. Tilgangurinn er að
skapa íslenzkt bókasafn á hverju heimili á landinu. Það er
kugsjóná- og menningarmál. Og þessu takmarki verður ekki
náð, nema unnt verði að halda hinni bjartsýnu samvinnu
fjölmargra hjálparmanna um allt land, eins og hún hefir
koniið fram við áskrifendasöfnunina.
Utgáfustjórnin hefir auk þess tillag frá ríkissjóði, og
kefir sparað það um nokkur undangengin misseri, til þess að
vera viðbúin hinu mikla átaki. En ef útgáfukostnaður vex
stórkostlega meðan stríðið stendur, getur svo farið, að út-
8áfan þurfi meiri almennan stuðning frá Alþingi. Og hann
niun verða veittur, ef rekstur fyrirtækisins er heilbrigður
°S allt gert af hálfu kaupenda, umboðsmanna og útgáfu-
sMórnar til að láta fyrirtækið bera sig. Alþingi mun ekki
telja eftir ef með þarf að styrkja um stundarsakir útgáfu,
Sem allir vita, að er gerð af íslendingum, fyrir íslendinga
°S eingöngu kostuð af íslenzku fé.
IX.
Eitt hið mesta vandamál í sambandi við hina nýju um-
Uingsmiklu útgáfu er bókbandið. Það hefði þurft að vera
^æSt að binda í snoturt og ódýrt band nokkuð af útgáfu-
kókuni þessum þegar frá byrjun. Það gerði Oddur Björnsson
4