Andvari - 01.01.1940, Blaðsíða 32
28
Bjarni Benediktsson
andvabi
III.
Þau rök, sem á hefir verið drepið, sýna, að aðgerðir Al-
þingis 10. apríl voru bæði nauðsynlegar og réttmætar. En
það var enn fleira, sem vakti fyrir mönnum með samþykkt
þeirra. Á þau viðbótarrök var þá hvergi minnzt, en nú virð-
ist eigi lengur ástæða til að draga dul á þau.
Meðan ríkisstjórnin var að láta ganga frá orðalagi hinna
umgetnu þingsályktana síðari hluta dags 9. apríl, barst hennx
bréf frá brezkum stjórnarvöldum. Þar er sagt, að brezka stjórn-
in óttist, að með tilliti til þýzku innrásarinnar í Noreg og
hertöku Danmerkur sé aðstaða Islands orðin mjög viðsjár-
verð. Segir síðan orðrétt: „Hins vegar hefir brezka stjórnin
ákveðið að hindra það, að ísland hljóti sönxu örlög og Dan-
nxörk, og mun gera hverja þá ráðstöfun, sem nauðsynleg
ei- til þessa. Slík ráðstöfun kann að útheinxta það, að brezku
ríkisstjórninni verði veittar vissar tilslakanir á sjálfu ís'
landi. Brezka stjórnin gerir ráð fyrir, að islenzka ríkisstjórn-
in nxuni í eigin þágu veita slílcar tilslakanir, jafnskjótt og
brezka ríkisstjórnin kann að þarfnast þeirra, og að hun
muni yfirhöfuð ljá sanxvinnu sína við brezku ríkisstjórnxna
senx hernaðaraðili og bandamaður.“
Með þessu virtist að því komið, sem óttazt hafði verið, að
ísland yrði á einn eða annan veg dregið inn í styrjöldina.
Allur aðdragandi þessa benti mjög til, að sanxbaixd íslands
við Danmörku ætti verulegan þátt í, að svo var konxið. Herti
þetta mjög á nxönnum um að rjúfa þegar, a. m. k. um stund-
arsakir, þau tengsl, sem mestu hættuna hlutu að skapa.
sem sé meðferð íslenzks konungsvalds í Danmörku, uinhoð
Danmerkur til íxxeðferðar íslenzkra utanríkismála og land-
lielgisgæzlu. Það var einkunx þetta, sem vakti fyrir nxonn-
unx með að hraða svo afgiæiðslu umgetinna ályktana, a
þær voru samþykktar strax aðfaranótt 10. apríl. Eftir saxix-
þykkt þeirra var elcki framar hægt að nota sanxband íslands
við Danmörku sem átyllu fyrir hernámi landsins, þo a
vitanlega héldist sú hætta, sem stafaði af því, að það sjal
væri talið hafa hernaðarlega þýðingu.