Andvari - 01.01.1940, Qupperneq 37
AN'DVAM
Sjálfstæði íslands og atburðirnir vorið 1940
33
höfðum lengi haft ráðagerðir um að afnema síðustu leifar
ei'lends valds á tilteknu ári. Atburðirnir knúðu oss til að
gera það fyrr en ætlað hafði verið, en áður en varði voru
a oss lagðar nýjar viðjar.
Þrátt fyrir það eiguin vér að halda sömu stefnu sem
okveðin hafði verið. Vér verðum að treysta því, að hinar iiýju
hömlur á sjálfstæði voru standi einungis skamma stund.
Ef svo sltyldi fara, að hinum ægilega hildarleik lyki bráð-
lega og unnt væri á ný að ná eðlilegu sambandi við konung
vorn og sambandsríki, þá mundu aðgerðirnar 10. apríl verða
felldar úr gildi, nema sainkomulag næðist um að halda
heini áfram. En þótt þær féllu niður, þá mundi það einungis
verða um stundarsakir. Allir Islendingar mundu þá verða
sonimála um að nota fyrst endurskoðunarákvæði sambands-
loganna í ársbyrjun 1941 og síðan uppsagnarákvæðið strax
°g heimild er til þess, eftir árslok 1943. Til þessa mundi þó
sennilega eigi koma. Dönum getur eigi fremur en oss dulizt,
að sagan hefir kveðið upp sinn dóm, og að bezt er í vináttu
að jarðsetja það, sem þegar er dautt. Nú er orðið alveg ótví-
raett, að samfara niðurfalli sambandslaganna mundi konungs-
sanibandið einnig rofna, og verða íslendingar því nú þegar
að íhuga, hvernig þeir vilja láta koma hinu æðsta valdi fyrir.
Vera kann og, að ófriðurinn standi enn um stund, og hana
e- t. v. langa. Frá upphafi var gert ráð fyrir því, að sú skipun,
seni var á gerð 10. apríl, væri einungis til bráðabirgða. Verð-
Uv og ekki á móti því mælt, að ef það ástand, sem nú er,
helzt langa hríð, eru forsendur sambandslaganna fallnar
hrott, og geta íslendingar þá ekki lengur verið bundnir af
þeim. Einkanlega lægi nærri að álykta á þessa leið, ef ekki
væri unnt að byrja á samningum um endurskoðun á sam-
handslögunum á árinu 1941, þó að íslendingar gerðu kröfu
um það skv. 18. gr. sambandslaganna.
Ef þau atvik yrðu fyrir hendi, sem tvímælalaust sýndu,
að íslendingar væru ekki framar bundnir af sambandslög'-
Unum, mundi eðlilegast, að Alþingi og handhafi konungs-
valds gæfu yfirlýsingu þess efnis, og síðan yrði þjóðarat-
3