Andvari - 01.01.1940, Page 99
andvaui
Finnland
95
niiklar ýfingar milli Finna og Rússa. I lok aldarinnar, þegar
Svíar brutust algerlega undan Dönum og Vasa-ættin hófst
til valda í SvíþjóÖ, fylgdi Finnland Svíþjóð.
Gustav Vasa innleiddi siðabót Lúthers í báðum löndum
sínum. í fyrsta skipti varð finnskan bókmál og menningar-
niál. Biblían var þýdd á finnslcu og prestarnir gáfu út á
finnsku sálmabækur og bænabækur. Finnsku bændurnir
lærðu smátt og smátt að lesa og skrifa, en samt sem áður
var sænskan enn í 3 aldir drottnandi menningarmál Finn-
lands. íbúar bæja og sjávarsveita hafa frá ómunatíð talað
sænsku, en sænskan varð nú mál allra embættismanna,
nema prestanna, og menntamenn landsins t'öluðu og rituðu
sænsku, enda þótt þeir væru alfinnskir að ætterni. Eftir
siðskipti, er kirkjan var svipt lendum sínum og jarðeignum,
fengu sænskir aðalsmenn mikil lén í Finnlandi og fluttu
þangað hópum saman. Gamall finnskumælandi aðall var
að vísu til í Iandinu, en hann glataði brátt tungu sinni og
tók að mæla sænsku. Á 16. og 17. öld risu upp í Finnlandi
niargir kaupstaðir, sem rálcu verzlun og viðskipti við Sví-
þjóð. En þar eð öll viðskipti í milli landanna fóru fram á
sænsku, tóku bæjabúar og kaupstaðafólk upp sænska tungu
°g urðu smám sainan að Svíum. Sænskan varð þannig hið
opinbera mál Finnlands og mál allrar yfirstéttarinnar,
nienntamannanna og nokkurs hluta alþýðunnar. Finnlandi
var að öllu stjórnað sem héraði af Svíþjóð og Finnar urðu
sænsklundaðri en Svíar sjálfir og konunghollari en sjálf
þonungsættin. Það voru finnskir bændasynir og bændur,
seni mynduðu kjarnann i her Gustavs Adolfs og Karls XII.
l innskir hermenn létu í lnisundatali „sitt blóð á Leipzig-
sléttum, Póllands-söndum, Narva-melum“ — í þágu sænska
vikisins. Alla 17. öld var sænska ríkið í uppgangi og hagur
f'innlands blómgaðist að sama skapi, verzlunin efldist og
iðnaður tók að blómgast og ný og ný svæði voru tekin til
ræktunar og byggð. Finnland fékk líka nokkurn landauka
G'á Rússum. 1617 voru Kexholmlén og Vestur-Karelía lögð
nndir Finnland og þá fékk Finnland sín núverandi Iandamæri.