Vikan - 05.12.1968, Blaðsíða 3
E'EGAR MENN FLUGG í FYRSTA SINN.....
JÓL í KÁETUNNI, SMÁSAGA ............
AFMÆLI Á AÐFANGADAG ................
HVAÐ SEGJA SPILIN? .................
NÚ Elt ÉG BÚINN NÚ GET ÉG FARIÐ AÐ
BYRJA ..............................
SAGA FORSYTEÆTTARINNAR .............
HANN LÉT SKRÁSETJA HEIMSBYGGÐINA ...
ALLT ER ÞEGAR ÞRENNT ER.............
TRÚIN Á LÍF í BERGI OG HÓL..........
EFTIR EYRANU........................
JÓLABÓK VIKUNNAR, 16 SÍÐUR .........
BIs. 4
BIs. 12
Bls. 14
BIs. 16
Bls. 18
Bls. 24
Bls. 26
Bls. 28
Bls. 30
Bls. 32
BIs. 45
VÍSUR VIKUNNAR:
Um fánýti lífsins farið er mörgum orðum
af frægum mönnum í blöðum og ræðustól
og tilveran þykir tómlegri nú en forðum.
En timinn líður og nú eru komin jól.
Og daufgerðir klerkar lyfta höndum til hæða,
þó heilagur andi dugi þeim jafnan skammt,
og krónan fellur og kaupmannasamtökin græða
á kristindómnum, - já, lífið er gamansamt.
ÚR VIZKULIND VIKUNNAR*
Þegar foreldrarnir hætta loks að velta því fyrir sér, hvers
vegna í ósköpunum börnin slökkvi ekki ljósin, — þá er ekk-
ert líklegra en að þeir fari að velta því fyrir sér, hvers vegna
þau geri það.
FORSÍÐAN:
Jólin eru ekki hvað sízt hátið barnanna, og hátíðahald full-
orðna fólksins beinist að verulegu leyti að því að gera börnun-
um það sem gleðilegast og eftirminnilegast. Því er vel við
eigandi að helga forsíðuna börnum og jólum, eins og Baltasar
hefur gert hér.
VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR IIF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröntlal. Blaða-
mað'ur: Dagur Þorleii'sson. Útlitsteikning': Snorri Friðriksson.
Dreifing': Óskar Karisson. Auglýsingastjóri: .Tensína Karlsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, aígreiðsia og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 523. Verð í lausasölu lcr. 50,00. Áskriftarverð er 475 kr.
fyrir 13 töiublöð ársfjórðugnslega, 900 kr. fyrir 26 tölublöð misserislega,
eða 170 kr, fyrir 4 tölublöð mánaðarlega. Áskriftargjaldið greiðist fyrir-
fram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst eða mánaðarlega.
í næstu viku segjum við frá
ferð blaðamanns Vikunnar og
tveggja íslenzkra stúlkna til
Marokkó, og heitir greinin
Á söguslóðum Angelique. Það
hittist vel á, því í sama blaði
er upphaf nýrrar sögu af
Angelique. Sú saga heitir
Angelique í Vesturheimi og
segir frá erfiðleikum, ástum
og sigrum þessarar vinsælu
söguhetju í Ameríku. Nú er
hún í gersamlega nýju um-
hverfi og hefur sagan mjög
skipt um blæ; nú er við alls-
leysi, erfiða náttúru og
grimmlynda Indjána að etja,
svo nokkuð sé nefnt. Angeli-
que í Vesturheimi er ekki
síður spennandi og viðburða-
rík en þær sögur, sem áður
eru komnar af Angelique.
Þá er einnig í sama blaði
sagt frá annarri frakkneskri
ævintýrakonu, sem hefur orð-
ið mikillar hylli aðnjótandi
bæði heirna og erlendis. Heit-
ir sú Catherine, og er saga
hennar látin gerast um tveim
öldum fyrir tíma Angelique,
eða í 100 ára stríðinu. Við
segjum í stuttu máli frá
þræði þeirrar sögu og birtum
kafla úr bókinni, en hún er
að koma út í íslenzkri þýð-
ingu um þessar mundir.
Við höldum áfram með For-
sytesöguna að vanda, og enn-
fremur með stjörnumerkin.
Nú er röðin komin að bog-
manninum, og eflaust þykir
mörgum góðum borgaranum,
sem fæddur er í því merki,
fróðlegt að vita betur um sig
og sína skapgerð.
.__________________________J
VIKAN-JÓLABLAÐ S