Vikan - 05.12.1968, Blaðsíða 33
Þeir. sern fylgjast að staðaldri með
þættinum ,,Eftir eyranu“ í Vikunni,
muna sjálfsagt eftir því, að í sumar
leið birtist hér bréf frá einum *aðdá-
anda hljómsveitarinnar Geislar á Ak-
ureyri, sem kallaði sig „bálreiðan
norðlending". Þetta bréf vakti furðu
margra enda að vonum, þar eð það
bar vott um næsta broslegar sálar-
flækjur bréfritara, sem gaf ótvírætt í
skyn, að viss klíka innan blaðanna réði
því, að engin hljómsveit utan Reykja-
víkur gæti orðið vinsæl. Þetta var
megininntak bréfsins, en öðrum þræði
var svo bréf þetta slíkt uppskrúfað
lof um piltana, að það jaðraði við að
vera háð.
Þegar við í grandaleysi okkar birt-
um þetta bréf gerðum við það í þeirri
tiú, að hinn „bálreiði norðlendingur'*
væri í innsta hring hljómsveitarinnar,
og álitum við frómt frá sagt, að bréf-
ið speglaði skoðanir þeirra félaga í
Geislum. Okkur brá þess vegna heldur
en ekki í brún, þegar í ljós kom, að
Geislar höfðu engan hlut átt að tilskrif-
inu og vissu hvorki haus né dyndil á
bréfritara. Sami bréfritari hafði þó áð-
ur fóðrað okkur á myndum og upp-
lýsingum um Geisla, en sú blekiðju-
starfsemi var einnig án vitundar
hljómsveitarinnar.
Margir urðu til að skrifa okkur
vegna bréfs þessa, en ekki þykir okk-
Aí'DRES INDRIÐASOM
ur ástæða til að birta þau í heilu líki
nú, þegar á daginn er komið, að
Geislar eru sjálfir blásaklausir af til-
skrifinu og hinir sárustu í garð þessa
óþekkta „aðdáanda síns“, sem af
skammsýni gerði þeim þennan grikk.
Hinn „bálreiði" norðlendingur sagði
á einum stað í hinu dæmalausa bréfi
sínu:
„Þegar minnzt er á innlendar
hljómsvcitir er aðeins talað um
HJjóma, Oðmenn eða Flowers og
einstaka sinnum hundleiðinlegar
hljómsveitir, sem ég ætla ekki að
tclja upp. Þetta er óviðunandi,
eins og allir sjá, því það er grát-
legt að horfa upp á hljómsveit
eins og Geisla fara í súginn vegna
þess að þeir eru ekki frá Reykja-
vík."
Meðal bréfað sein okkur barst vegna
þessa, var eitt frá „stórhneyksluðum
sunnlcndingi". Hann segir m. a.:
„í sambandi við ástæðulausar að-
dróttanir varðandi það, að hljóm-
sveit geti ekki orðið vinsæl nema
að vera frá Reykjavík má benda
á, að Hljómar, vinsælasta og lang,
lang, langbezta (leturbreyting bréf-
ritara) hljómsveit landsins er frá
Keflavík en ekki Reykjavík. Það
voru Óðmenn einnig. Dumbó sext-
ett, sem um langt skeið hefur ver-
ið í hópi okkar vinsælustu hljóm-
svcita er frá Akranesi og Logar
frá Vestmannaeyjum voru á sín-
um tíma mjög vinsælir hér í
Reykjavík. Ekki veit ég betur en
að Hljómsveit Ingimars Eydal sé
nú viðurkennd einhver vandaðasta
og skemmtilegasta hljómsveit
landsins á sínu sviði — en er hún
ekki annars frá Akureyri?
Nei, Geislar þurfa ekki að fara
í súginn, þó að þeir séu ekki frá
Reykjavík. Ef þeir gera það, þá
Framhald á bls. 61
Ilelgi
Sigurbjörnsson,
orgelleikari. }
»
* PáU
l’orgeirsson,
trominur.
*
m
x
m
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
¥
*
¥
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
¥
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
VIKAN-JOLABLAÐ 33