Vikan - 05.12.1968, Blaðsíða 22
*
IIIKAN HEIMSKKIR UHG HJÖN. SEM EIGNUIHST ÞRÍBURA í FVRRA
TEXTI: GYLFI GRÖNDAL LJÓSM.: KRISTJÁN MAGNÚSSON
Líklega er svo farið um marga
foreldra, sem eiga von á nýjum
erfingja, að sú óþægilega tilhugs-
un hvarflar að þeim öðru hverju,
að ef til vill kynnu þeir að eign-
ast tvíbura. Að börnin verði fleiri
en tvö er hins vegar of fjarlægur
möguleiki til þess að menn láti
sér detta hann í hug. Og þó ger-
ist slíkt öðru hverju.
Samkvæmt hagskýrslum fæð-
ast þríburar hér á landi um það
bil þrisvar sinnum á fimm ára
tímabili. Fæðingarskýrslur frá
árunum 1896—1960 sýna, að á því
áraskeiði hafa þríburar fæðzt alls
átján sinnum.
VIKAN heimsótti á dögunum
ung hjón, Þórunni Ásgeirsdóttur
og Gylfa Jónsson, loftskeyta-
mann, til heimilis að Eikjuvogi
28, en þau eignuðust þríbura í
fyrra.
Þeir komu hlaupandi á móti
okkur, tveir drengir og ein
stúlka; allt bráðmyndarleg börn,
bæði falleg og skemmtileg.
— Þetta er Ásgeir. Hann kom
fyrstur í heiminn, fæddist í for-
stofunni, segir Þórunn, þegar hún
tekur á móti okkur og kynnir
okkur fyrir þríburunum sínum.
— Fæðinguna bar svona brátt
að. Hin tvö fæddust á fæðingar-
deildinni. Jón Trausti kom næst-
ur, en Hildur er yngst. Þau voru
öll um 8 merkur að þyngd....
Þriburarnir fæddust 22. maí í
fyrra, og þau hjónin áttu ekki
einu sinni von á að eignast tví-
bura.
—- Þetta kom okkur alveg á
óvart, segir Þórunn. — Þegar ég
fór síðast í skoðun, lét læknirinn
að vísu að því liggja, að ef til
vill mundi ég eignast tvíbura. En
við tókum ekkert mark á þessu.
Við héldum, að læknirinn hefði
sagt þetta meira í gamni en al-
vöru.
Þau hjónin eru bæði kornung,
Þórunn er 22 ára, en Gylfi 24 ára.
Þau áttu eina dóttur fyrir, Önnu
Helgu, sem nú er að verða fimm
ára. Þau bjuggu í tveggja her-
bergja íbúð í Hraunbæ og álitu,
að sú íbúð mundi duga þeim fyrst
í stað að minnsta kosti. En þegar
þrjú börn bættust við í einu, var
orðið býsna þröngt um þau. Þau
hafa nú fengið stærri og betri
íbúð, þar sem börnin hafa meira
svigrúm til að hlaupa um og leika
sér.
— Ég varð að hafa þrjá vagna
á svölunum í Hraunbænum, segir
Þórunn. Og þegar að því kom,
að okkur vantaði kerru, vandað-
ist málið. Þríburakerra var hvergi
fáanleg, svo að maðurinn minn
varð að kaupa tvíburakerru, taka
hana í sundur og breikka hana,
svo að þríburarnir kæmust fyrir
í henni.
Það þarf naumast að spyrja að
því, að vinnudagur Þórunnar er
bæði langur og strangur. Hún er
á þönum frá því eldsnemma á
morgnana, og það er áreiðanlega
oft orðið áliðið kvölds, þegar hún
getur loksins lagzt til hvíldar.
Framhald á bls. 86
22 VIKAN-JÓLABLAÐ
I