Vikan - 05.12.1968, Blaðsíða 93
Reykjalundur,_________sími um Brúarland. Skrifstofa í Reykjavík: Bræðraborgarstíg 9, símí 22150
am
fyrir börn
á öllum aldri
am \
alltaf eitthvað 1
nýtt og spennandi
sm
sameinar fullorðna
og börn i leik
grundaði stökuna. Þykist hann vita
að þau ein viðskipti muni orðið
hafa þeirra Lágólfs að Skeljungur
muni sér ei einhlítur; heitir því á
húskarla að vitja hans. Þeir fóru og
fundu hann ei fyrir myrkri; var svo
kyrrt um nóttina. Að morgni snemma
fór bóndi sjálfur með menn sína að
leita Skeljungs; fundu þeir hvar þeir
Lágálfur höfðu að gengizt;var grjótið
upp leyst, en Skeljung sáu þeir ekki
var þá leitað víðar og fannst hann
ei og þótti kynlegt. Litlu síðar urðu
menn þess varir að Skeljungur lá
ekki kyrr og mundi hann aftur geng-
inn og hafast við í fjallinu fram frá
r A
^ólalirtJJislvcicJ
Magnús E. Baldvinsson
Laugavcgi 12 - Símí 22804
Silfrastöðum. Varð að því mörgum
mein er um dalinn fóru. Drap Skelj-
ungur fyrir þeim hross og hunda
og villti um menn. Þó varð Þor-
grími bónda mest tjón að. Var
sauðamaður hans drepinn á næstu
jólum; fór svo inn næsta vetur á
sömu leið. Varð nú bónda illt til
sauðamanna er meinvættur slíkur lá
í landi. Beið hann af slíku mikinn
ófagnað, en varð ei að gjört. Liðu
svo fram þau missiri til inna þriðju
jóla.
Nú víkur sögunni til Grænlands
er Grímur Islendingur hefur setið
þar í fagnaði hjá þeim feðgum öll
þessi missiri. Hafði hann margt
numið af bónda og var hann nú af-
burðamaður orðinn að hreysti og
íþróttum. Það var um vorið ið síð-
asta er Grímur var á Grænlandi, þá
var sumardagsmorguninn fyrsta, að
bóndi kom að máli við Grím Is-
lending: „Nú hefur margt fyrir mig
borið á nóttu þessari og hugast
mér svo að faðir þinn muni þurfa
þinnar liðveizlu; er nú smalamaður
hans orðinn meinvættur og leggst á
góss hans og menn og mun þér
einum auðið verða að fyrirkoma
honum. Nú skaltu búa þig til ls-
landsferðar í sumar. Mun ég fá þér
knör lítinn og skal Grímur sonur
minn með þér fara og Ingibjörg
dóttir mín. Sé ég að forlög ykkar
liggja saman og muntu þá gifta Ingi-
björgu systur þína Grími syni mín-
um. Skal hann flytja hana hingað
að sinni, en þó munu þau síðar auka
kyn sitt á íslandi, en þú munt ei
staðfestast á íslandi, heldur munu
forlög þín liggja þaðan, en ætíð
þykja þar mestur maður, er þú
kemur. Nú mun ég búa ferð yðra
sem föng eru á." Grímur þakkaði
bónda tillögur sínar og kvaðst hans
forsjá hlýða vilja.
Nú líður fram á sumarið og leysti
ekki frera fyrr en í þrímánuði. Nú
búa þeir nafnar skip sitt og fékk
bóndi þeim öll fararefni in beztu.
Gaf hann Grími Islendingi kjörgripi
marga og þar með spjótið tröllkonu-
naut er þeir tóku úr hellinum. Kvað
hann það mundi flestar áreynslur
þola. Síðan kvaddi bóndi börn sín og
mágsefni og árnaði þeim heilla.
Létu þeir fóstbræður í Grænlands-
haf móti vetri og höfðu útivist harða
vegna óveðráttar og hafísa. Loks-
ins tóku þeir land í Blönduósi
tveimur dögum fyrir jól. Grímur Is-
lendingur kvaðst vilja ríða sem
hvatlegast norður tt I Silfrastaða.
„Segir mér svo hugur að ei muni
of snemma. En þið skuluð bíða hér
við skip þar til ég kem aftur." Síð-
an leigði hann sér tvo reiðskjóta er
beztir voru. Það var aðfangadag
jóla. Grímur hafði öll herklæði góð
og skrautbúin. Hann hafði spjótið
VIKAN-JOLABLAT) 93