Vikan - 05.12.1968, Blaðsíða 36
Vanti yður tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson
kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en
nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum.
Einkaumboð:
I. GUÐMUNDSSON & CO. HF„
Hverfisgafa 89, Reyk|avík.
STJÖRNUSPÁ m - ■ý'f&s v.
% —______ M Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Tilveran verður fremur litlaus og ekki mikið um hressilegar samræður eða aðrar skemmtanir. Þú ert óheppinn með hlut sem þú notar mikið dag- lega. Miðvikudagur beztur til viðskipta. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Lagfærðu mistök sem þér hafa orðið á, þau spilla fyrir þegar málið vex. Nágrannar þínir eru nokk- uð ófriðlegir, hafðu samt hægt um þig. Þú færð góðan gest í nokkra daga.
m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Mörg tækifæri bjóðast til að taka þátt í félags- skap sem þú hefur áhuga á, en þú frestar þátttöku enn um sinn vegna fjölskyldunnar. Vertu viðbúinn óvæntum útgjöldum. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú ert misrétti beittur og því miður fylgja því nokkur fjárútlát, en það kennir þér að vera var- j kárari næst. Það verður minna úr framkvæmdum en ráð var fyrir gert. Gönguferðir heppilegar.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú hagnast á óþolinmæði annarra og átt eftir að njóta þess lengi. Veikindi starfsfélaga þíns draga úr persónulegum framkvæmdum þínum. Þér geng- ur illa að fá aðstoðarmenn sem eru þér að skapi. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Rólegheit og þægileg líðan eru einkennandi fyrir vikuna. Þú dvelur mest heima og sinnir persónu- legum áhugamálum. Þú færð gott tækifæri til að bæta fjárhaginn, sökum kunnáttu á vissu sviði.
Á Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Þú færð skilaboð, sem ylja þér um hjartaræturn- ar. Mikið fjölmenni verður í kringum þig. Eldrí kona lætur sér mjög annt um þig og eyðir mörg- um stundum hjá þér. Þú ferð á dansleik. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúqr ,); Þér berst gjöf sem setur þig i mikinn vanda. Þú getur ekki komið af öilu sem þú hefur lofað. í>ú verður fyrir óþægilegu ónæði í gegnum sirr iann einhvern næstu daga.
Ljónsmerkið (24. júl( — 23. ógúst): Reyndu samningshæfni þína og ljpurð til þess að fá sem mest út úr frítíma þínum. Þér gæti orðið vel ágengt ef þú talar við rétta menn. Þú færð góða aðstoð um helgina. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúiar): Þú átt ekki eins annríkt og oft und jnfa rið. Þú nýtur frítímans bezt með þvi að dunda he ima við áhugamál þín. Þér reynist örðugt að kor na áríð- andi skilaboðum af þér i tíma.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú skipuleggur tíma þinn illa, ert önnum kafinn og nýtur lítillar hvíldar. Ætlastu ekki til of mik- ils af öðrum, þú einn berð ábyrgðina. Finnst þér ekki stundum aö sparsemin gangi út i öfgar? Fiskamerkið (20. febrúar — 20. manz): Gleymdu ekkl að lífið hefur upp á fleiræ að bjóða en púl og strit. Þú hefur sett þér mi.ki&' fyrir og hagnast ekkert á að leggja svona hart að fa ár. Hlust- aðu á ráðleggingar annarra.