Vikan - 05.12.1968, Blaðsíða 97
ungur færðist þá í herðar og tog-
aði sem mest mátti. Grímur
'spyrndi við þilinu þar til það leysti
undan skálanum. Komust þeir- þó
fram í anddyrið. Sér þá Grímur að
eigi má við sporna og muni þurfa
ráðum við að koma. Snarar hann þá
undir sig feldinum og leggst þar á
og lætur Skeljung draga sig út úr
dyrunum. Grímur færði fætur við
hvar hann mátti, en þó dró Skelj-
ungur hann út úr bænum um leið
að leysti frá dyraumbúninginn.
Stefndi þá Skeljungur suður frá
bænum og gjörði Grímur honum
sem torveldasta ferðina og spyrndi
hvarvetna við þúfum öllum og mis-
hæðum, og varð það flest upp að
ganga. Sótti draugurinn rammliga
förina, tók þó að draga af honum.
Gekk þetta alla nóttina, unz þeir
komu á Grímshól er fyrr um getur;
var þá komið fast að degi. Þá veitti
Grímur viðnám eftir megni, og lauk
svo að Grímur gat fært drauginn að
steininum og bundið hann í þær
gegnumdregnu ólar er fyrr segir og
fjötrað hann ramliga. Skildi Grím-
ur þar við hann og gekk heim til
Silfrastaða og sótti sér hrísbyrði
mikla og eld; lýsti þá af degi. En
er Grímur kom til baka á hólinn,
var Skeljungur horfinn og steinninn
með. Grímur þóttist vita að drauaur
inn mundi hafa haldið fram með
hlíðinni og heldur undan brekku en
móti og gengur því í áttina. Sér
hann þá til ferða Skeljungs hvar
hann dregur stjórann og fer ógreið-
lega. Grímur nær honum á höfða
þeim er verður við Norðurá fram
með hlíðinni. Grímur hjó þá af
Skeljungi höfuðið og bar síðan á
viðinn og brenndi Skeljung til ösku
við steininn. Síðan færði hann ösku
hans ( síki það er lá undir höfðan-
um. Var það sögn eldri manna um
langa ævi að í síkinu hefði myndazt
af öskunni fiskar tveir loðnir og
bláir að lit og varað þar langa tíð
unz Norðurá breytti á seinni tíðum
farveg sínum og féll undir höfðann
í síkið; hurfu þá fiskarnir. Steinn
sá er Skeljungur dró stendur enn
við þjóðveg og er mjög í jörðu
genginn; er á honum ofanverðum
eitt gat þekkjanlega með járni rennt,
en tvö sokkin. En fyrir fjörutíu ár-
um þá ég fyrst sá steininn og skoð-
aði mátti finna ið annað gatið við
jarðrætur sem nú er sokkið. Veit
því enginn hve mikill steinninn er.
A höfða þessum var löngu síðar
byggður bær og kenndur við draug-
inn og hét á Skeljungsstöðum. Hans
getur í Sturlungu, því þar áði Eyj-
ólfur ofsi með menn sína á leið í
atförina að Gissuri jarli á Flugumýri.
Þar er Skeljungshellir suður og upp
í fjallið enn nú sjáanlegur.
Nú er að segja frá Grími að hann
gengur heim eftir viðureign þeirra
og var hann mjög þrekaður. Fögn-
uðu honum allir og þökkuðu með
mörgum fögrum orðum fyrir land-
hreinsun þá er hann gjört hafði. Var
það almælt að hans líki mundi ekki
uppi í Skagafirði. Segir hann nú
föður sínum frá ferð sinni til Græn-
lands og öllum skilmálum þeirra
r
HINAR
VIÐURKENNDU
ENGLISH ELECTRIC
N
SJÁLFVIRKU ÞVOTTAVÉLAR 2 GERÐIR
GERÐ 474 GERÐ 484
. Heitt cða kalt vatn til áfyllingar.
• Innbyggður lijólabúnaður.
• 8 þvottastillingar — skolun — vindun
• Afkiist: 4,5 kg.
• 1 árs ábyrgð
• Varaliluta- og
viðgerðaþjónusta.
otpBkco
ENGLISH ELECTRIC
^ Laugavegi 178 Sími 38000
þurrkarann má tengja
við þvottavélina (474)
VIKAN-JÓLABLAÐ 97
wjoisvoNStfony©