Vikan - 05.12.1968, Blaðsíða 99
feðga og bað hann nú drengilega
við verða og kvaðst eiga þeim feðg-
um" líf að launa og allt ágæti, ,,og
mun syslir mín ekki ! betri hendur
gefin verða fyrir allra hluta sakir."
Bóndi kvað svo vera skyldi sem
þeir höfðu um mælt, ,,og skal dóttir
mín fara með Grími fóstbróður þín-
um til Grænlands því ég veit þau
muni síðan hér á landi staðnæmast
og æxla hér kyn sitt." Grfmur þakk-
aði honum allan drengskap. Var nú
bóndadóttir búin úr garði með beztu
kostum; fylgdu þeir feðgar henni
báðir til skips í Blönduósi. Varð þar
fagnafundur. Fékk Þorgrímur dóttur
sinni fé mikið í gulli og silfri og
dýrum gripum, en Grími græn-
lenzka gaf hann nokkra menn til
fylgdar. Grími gamla á Grænlandi
sendi hann og góðar gjafir. Skild-
ust nú allir að í kærleikum. Kvaddi
Þorgrímur bóndi dóttur sína og
hrukku honum föðurlig tár að skiln-
aði. Rann þá á hagstæður byr og
lét Grímur í haf með festarkonu
sína. Þeir feðgar tóku síðan ferð
heimleiðis norður til Silfrastaða,-
var Ingibjörg grænlenzka í för með
þeim; var hún hin fegursta mær og
kvenkostur. Litlu síðar gekk Grím-
ur Þorgrímsson að eiga hana; tók-
ust með þeim ástir góðar. Það fundu
menn að Grímur hafði mjög stirðnað
í skapi eftir viðureign þeirra Skelj-
ungs og varð hann lítt hæfur við
byggðarmenn,- var hann því gjörð-
ur suður til Borgarfjarðar. Dvaldi
hann þar ei lengi og sigldi af landi
brott með konu sína Ingibjörgu.
Nam hann loks staðar austur í Sví-
þjóð og jók þar kyn sitt. Kom hans
afspringur ei til íslands svo menn
viti. Varð hann víðfrægur maður af
sínum hreystiverkum.
Það er fróðra manna sögn að
Grímur grænlenzki, fóstbróðir hans,
hafi eftir dauða föður s(ns flutt sig
til (slands með konu sína Ingibjörgu
og búið á norðanverðum Skaga er
liggur milli Skagafjarðar og Húna-
flóa. Hans son var Þorgrímur veð-
urspár, er bjó að Ketu, hans son
var Gunnar er bjó á Höfnum, hans
son var Grímur er þar bjó síðan. Sá
Grímur bjó í Höfnum ( þann t!ma
er Þorgerður (alii-Þorbjörg) kolka
kom af Hornströndum og setti bú
að Kolkunesi ! trausti Gríms bónda
! Höfnum. Hennar getur séra Eyj-
úlfur á Völlum ! fornfræðum sem
stórmerkiligrar konu og bjargvættar
og að við andlát hennar hafi skeð
teikn mikið, að landskjálfti ógurlig-
ur hafi í jörðu hlaupið og gjört
mikil umbrot á Skaga og víðar. í
þeim landskjálfta hafi bærinn Gull-
brekka ( Nesjum sokkið ( jörð nið-
ur með fólki og fé. Er þar nú fen
mikið er áður var bærinn. Var þar
sönghús fagurt og sóttu Nesjamenn
þangað tiðir. En siðan var sett bæna-
hús ( Höfnum sem staðið hefur fram
á þessar tíðir. Gjörðust margar sagn-
ir á Skaga um þann tíma Grímur
bóndi bjó ! Höfnum sem ekki koma
við þessa sögu Og Ijúkum vér
svo söguþætti þessum af Grími
Skeljungsbana.
☆
Karlmaöur óskar sér karlmannlegrar gjafar...
það hlýtur að vera
Eftir rafmagns - rakstur
Hár - krcm
Raksápu - krús
Andlits - talkúm, Hár.-krem, Svita-krem
5HULTON 'NEWYORK • LONDON • PARIS
Mm[ með tímaniii
lar iflnsta nerðir at PKBPQNT
Mikið úrval af lóðaklukkum —
stofuklukkum — eldhúsklukkum
(með transistorverki) — tímastill-
um — vekjaraklukkum.
Góðar og nytsamar jólagjafir á
GAMLA VERÐINU.
HELGIGUDMUNDSSQN
Úrsmiður
Laugavegi 96 - Sími 22750 (við hliðina á Stjörnubíói)
V________________________________________y
VIKAN-JÓLABLAT) 9í)