Vikan - 05.12.1968, Blaðsíða 6
HaCOHh SÚPUR
Svissneskar súpur
Ekkert land stendurframar í gestaþjónustu
og matargerb en SVISS.
HACO súpur eru frá Sviss
Hámark gæda
Vegetable de Luxe
Chicken Noodle
Primavera
Leek
Oxtoil
Celery
Aspa ragus
Mushroom
Tomato
HaC0*H>
FrílhlinK»uppe
Potijf prinlinkT
LANDIÐ ÞITT
Elsku Póstur!
Við höfum ákveðið að
gera þig að dómara í deilu-
máli okkar. Þetta er veð-
mál og mikið í húfi. Deilu-
efnið er þetta: Hvað eru
margir bæir til á landinu,
sem heita LAUGALAND.
Ég segi tveir, en hann fjór-
ir. Hvort er réttara?
Beztu kveðjur.
Skötuhjú.
Ekki erum við nógu góðir
í landafræði okkar eigin
lands, að við treystum okk-
ur til að segja hjálparlaust
til um þetta. En við skul-
um fletta upp í bókinni
Landið þitt og sjá hvað þar
stendur. Þar eru gefnir upp
þrír bæir með þessu nafni:
Tveir í Eyjafjarðasýslu, og
einn í Rangárvallasýslu.
Annar bærinn fyrir norð-
an er á Þelamörk, stendur
vestan í Moldhaugnahálsi
rétt við þjóðveginn til Ak-
ureyrar. Hitt Laugalandið
er í rauninni tveir bæir,
Ytra- og Syðra-Laugaland
í Staðarbyggð í Önguls-
staðahreppi. En samkvæmt
símaskránni eru átta bæir
með þessu nafni, svo að þið
hafið örugglega bæði rangt
fyrir ykkur.
GÓÐ SJÓNVARPSDAGSKRÁ
OG GEÐILLAR KERLINGAR
Kæri Póstur!
Nú get ég ekki lengur
orða bundizt yfir bréfi
þessarar „bálreiðu heima-
setukerlingar“ um dagskrá
sjónvarpsins. En frekjan og
tilætlunarsemin. Ég segi
fyrir mitt leyti, að dagskrá-
in er stórfín. Þótt ég sé að-
eins 18 ára og ætti þess
vegna að vera á böllum um
allar helgar (sem ég gerði
hér áður), er ég hætt að
fara út nema örsjaldan, því
að alltaf er eitthvað í sjón-
varpinu, sem ég vil ekki
missa af. Ég veit, að for-
eldrar mínir eru miög
ánægðir með, hve oft ég
er heima núna. Það er ekki
bara Forsyteættin, heldur
líka sakamálamyndin eftir
höfund Melissu, Grannarn-
ir, Lucy Ball, enskar sjón-
varpskvikmyndir, gamlar,
amerískar og enskar kvik-
myndir, þáttur Jóns Múla,
sumar franskar myndir,
Millistríðsárin, myndir um
fátækt í stórborgunum, Op-
ið hús, Denni dæmalausi,
Lassí og Hrói höttur. —
Óli Gaukur og fleiri hljóm-
sveitir fyrir miðaldra fólk
hafa aldrei hrifið mig, en
þær ættu að falla þessari
kerlingu í geð. Auglýsing-
arnar eru alltaf skemmti-
legar, sérstaklega rétt fyr-
ir jólin. íþróttirnar eru
ágætar og veðurfréttirnar
nauðsynlegar, þótt veður-
fræðingarnir séu ekki nein-
ar Hollywood-stjörnur. Ég
er sammála, að barnatím-
inn er þrautleiðinlegur,
síðan Hinrik hætti.
Fræðslu- og kennslumynd-
ir eru margar hverjar
ágætar og nauðsynlegar.
Það er svo margt, sem
hægt væri að telja upp, og
hverig væri ef ekkert væri
sjónvarpað? Þá gæti þessi
■kerling kannski rifizt út
af Vikunni eða útvarpinu.
Útvarpið hlusta ég aldrei
á, nema Lög unga fólksins
og Á nótum æskunnar, svo
að ég get eklcert um það
sagt. En Vikuna les ég
alltaf spjaldanna á milli
og finnst hún ómissandi
eins og sjónvarpið.
Mér finnst, að þessar
óhamingjusömu konur,
sem sjá vankanta á öllu og
vilja öllu breyta, en hafa
ekki hugmynd um hvernig
þær vilja breyta því, —
mér finnst, að þær ættu að
líta í eigin barm og at-
huga, hvort það sé ekki
eitthvað að hjá þeim,
hjónabandserjur til dæmis
eða þvíumlíkt.
Ein 18 ára TV-aðdáandi.
P.S. Eitt vantar í sjón-
varpið. Það er þátturinn
„Top of the Pops“ frá
brezka sjónvarpinu, BBC.
Það er alveg dýrðlegur
þáttur. En kannski mundi
hann ríða kerlingunni að
fullu.
Eins og kunnugt er er
smekkur lolks afar mis-
jafn og því crfitt að' gera
öllum til hæfis. Okkur
hafa að undanförnu borizt
bréf, þar sem kvartað hel'-
ur verið yfir, að dagskrá
sjónvarpsins sé léleg, og
0 VTKAN-JÓLABLAÐ