Vikan


Vikan - 05.12.1968, Page 8

Vikan - 05.12.1968, Page 8
SINGER er spori framar. Singer saumavélin Golden Panoramie er fullkomnasta vélin á markaðnum. Hún vinnur sjálfkrafa allt frá þræðingu upp í 8 gerðir hnappagata. Singer Golden Panoramic gefur. nýja gullna möguleika. Mcöal annarra kosta: hallandi nal, frjals armur, lárétt spóla fyrir framan nálina, sjálfvirkur nálarþræðari, ósýnilcgur faldsaumur, tcygjanlcgur faldsaumur, keðjuspor, „overlokspor“, tvcir gangliraðar, 5 ára ábyrgð, G tíma kennsla innifalin. Ath. Allir sem eiga gamla saumavél, merkið skiptir ekki máli, geta nú fengið hanametna sem greiðslu við kaup á nýrri saumavél frá Singer. Gamla vélin er e.t.v. mcira virði cn þér haldið. Smser sala og kynmng 1 Reykjavik er hjá: Rafbúð SÍS, Ármúla 3, Liverpool, Laugavegi. Gefjun Iðunn, Austurstræti. Utan Reykjavikur: Kaupfélag Borgfirðinga, Kaupfélag Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Eyfirðinga, Kaupfélag Þingeyinga, Kaupfélag Héraðsbúa, Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, Kaupfélag Skaftfellinga Kaupfélag Árnesinga, Kaupfélag Suðurnesja. Komið og kynnist gullnu tækiræri. jé i a secjur -iM'k- ölíffKi6W d o ixa * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * Einu sinni var bóndi á bee; hann bjó norður við Mývatn. Það vatn er svo stórt að ekki er minni veg- ur utan um það en þingmannaleið. Það bar til einu sinni í byrjun túna- slóttar þegar fólk allt var að hey- vinnu úti á túninu að kona kemur fró vatninu og stefnir að bænum. Hún gengur til bónda og biður hann að lofa sér að vera í nótt. Bóndi lofar henni það. Hann spyr hana að nafni, en hún kvaðst heita Ulfhildur. Bóndi spyr hana hvaðan hún sé, en hún eyddi því. Um kvöldið er tekið saman hey hjó bónda og biður Úlfhildur þá um hrífu. Rakar Úlfhildur þá ei minna en á við tvo meðalkvenmenn og þó í gildara lægi væru. Næsta morgun vill Úlfhildur raka með hinum vinnukonunum, en bóndi kveðst ekki þurfa þess með og lætur á sér heyra að hann helzt viMi að hún fari í burt. Þá fer Úlf- hildur að gráta. Lofar. þá bóndi henni að vera þennan dag. Næsta morgun segir bóndi að nú verði hún að fara, en þá fer hún að gráta: kennir bóndi þá í brjósti um hana og leyfir henni að vera viku. Þegar vikan er liðin kveðst bóndi nú ekki lengur geta haldið hana, en það fer eins cg fyrr að þá fer Úlfhildur að gráta. Verður það þó úr að hann lofar henni að vera sumarið út og verður hún því mjög fegin. Öllum á heimilinu líkaði vel v:ð Úlfhildi því enginn þóttist hafa þekkt duglegri, þrifnari eða sið- ferðisbetri kvenmann. Þegar líður undir haustið er það róðgert að Úlfhildur skuli vera árið út og litlu seinna er hún föluð til að vera næsta ár. Þegar líður að jólum fram þann næsta vetur fær hús- freyja henni skæði til að gjöra úr skó tii jólanna handa sér og vinnu- mönnum þeim tveimur sem hún þjónaði. Hún gjörir skæðin handa vinnumönnunum, en sín skæði læt- ur hún vera ógjörð. A jóladaginn fara allir til kirkju nema Úlfhildur er ein heima. Er nú ekkert til frá- sagnar þangað tii iíður fram að næstu jólum. Húsfreyja fær Úlf- hildi skæði eins og fyrra órið til jólanna, en hún gjörir skæði vinnu- mannanna, en ekki sín skæði. Á jóladaginn fara allir til kirkju nema Úlfhildur er ein heima. En ó jólanóttina þóttist annar vinnumað- urinn hafa orðið þess var að Úlf- hildur hefði eitthvað á burt farið og hugsaði sér ef hann yrði henni samtíða næstu jólanótt og gæta betur að hvað henni liði. Líða nú jólin og veturinn og kemur Úlf- hildur sér einkar vel, og þóttust menn ekki vita hennar jafningja fyrir margra hluta sakir. Er ekkert til frásagnar þar til líður að þriðju jólunum. Húsfreyja fær Úlfhildi skæði í jólaskó að vanda og gjörir hún skóna handa vinnumönnunum eins og fyrr, en ekki sína. Hús- freyja mælti við Úlfhildi að nú yrði hún að fara til kirkju ó jóla- daginn því hún kvaðst hafa mætt álasi af presti fyrir það að hún færi aldrei til kirkju. Úlfhildur talaði fátt um og eyddi því. Þegar allir eru háttaðir á jóla- nóttína, en vinnumaður só vakandi sem óður er um getið, þá fer Úlf- hildur á fætur hægt svo enginn heyrir og laumast út úr bænum, en vinnumaður fer á eftir. Hún gengur að vatninu og þegar hún kemur þar tekur hún upp glófa og gnýr þá; verður þegar brú yfir vatnið,- gengur hún brúna og vinnumaðurinn á eftir. Þegar hún er komin yfir vatnið gnýr hún glófana aftur svo brúin hverfur. Úlfhildur heldur áfram ferðinni og sýnist vinnumanni sem hún nú haldi niður í jörðina, og verður dimmt mjög þar sem hún fer. Get- ur þó vinnumaður séð til hennar og heldur alltaf á eftir. Þau halda nú lengi áfram ferðinni þangað til smátt og smótt fer leiðin að verða bjartari. Loksins koma þau á slétta og fagra völlu; voru þeir svo fagrir og blómlegir að vinnumaður hafði aldrei séð svo fallegan stað. Báð- um megin vegarins var alþakið af fögrum blómum og voru grund- irnar Ijósbleikar á að líta þegar sólin skein ó fíflana og aldinin. Sauðahjörð lék sér ó flatlendinu, en stundum reif hún í sig blómin með áfergju. Nóttúran var yfirhöf- ið íklædd hinum fegursta búningi. Á þessu graslendi miðju stóð fög- ur höll og virtist vinnumanni það vera konungshöll, svo var hún skrautleg til að sjá. Þangað gekk Úlfhildur og inn í höllina. En vinnu- maður stóð ó afkima fyrir utan. VJ* *J\ VJ» VJV 7JV 7jV VJV 7]V TjV Vj\ 7JY VjV VJV Vp» Vf\ VJ\ 7JY 7JY yj\ Vj\ Vj\ yj\ 7j\ VJV VJV 7j\ VJV 7[\ VJ\ Vj\ V{V 8 VIKAN-JÓLABLAÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.