Vikan - 05.12.1968, Side 15
ugasta og fjórða desember, heldur hafi kirkjuleg yfirvöld af klókindum ákveðið hana þennan dag
dagur þessi samt í hugum flestra kristinna manna, vera hinn raunsanni fæðingardagur Lausn-
Vikan gerði sér það til dundurs hér á dögunum að hafa samband við nokkur þeirra og spurði eftir
Magnús Jóhannsson,
kaupmaður, f. 1928:
Sem barn var ég ekkert hrifinn
af þvi; þetta hvarf í jólaundirbún-
ingnum og maður fékk bara ióla-
gjafir, engar afmælisgjafir sér-
staklega. Og ekki hefur mér þótt
það betra síðan ég varð fullorð-
inn. Þetta gerir manni erfitt fyrir
eða ófært að halda upp ó afmælið
þótt maður gjarnan vildi, til dæm-
is þegar stendur ó heilum eða
hólfum tug. A þessum dögum
eru menn svo önnum kafnir við
margskonar útréttingar að enginn
hefur tíma til að skreppa í afmæl-
ishóf.
Eygló Kristjánsdótt-
ir, húsmóðir, f. 1942:
Meðan ég var mjög lítil, var
ekki laust við að mér fynndist
þetta verra, þar eð jólin virtust
yfirgnæfa afmælið. En foreldrar
mfnir gerðu sitt bezta til að bæta
úr þessu. Mér er sérstaklega f
minni fjórði eða fimmti afmælis-
dagurinn; þó fékk ég Iítið bolla-
stell í gjöf og fékk að bjóða
heim krökkum.
Síðan ég varð eldri, hefur mér
ekki þótt neitt verra að eiga af-
mæli þennan dag. Þetta hefur
aldrei komið niður ó mér hvað
afmælisgjafirnar snertir; ég hef
alltaf fengið þær séráparti frá
jólagjöfunum. Og auðvitað gef-
ur þetta afmælinu aukinn hátíð-
leika. Og síðan ég flutti til
Reykjavfkur, hef ég haldið upp
ó afmælið á Þorláksmessukvöld,
tekið ó móti gestum þá. Þó rekst
þetta ekkert ó sjólf jólahótíða-
höldin.
Jón E. Ragnarsson,
fulltrúi borgarstjóra,
f. 1936:
Á meðan ég ó afmæli að minnsta
kosti einu sinni á ári, þá er ég
ánægður. Þegar þessi dagsetn-
ing var ókveðin, var það ekkert
sérstaklega borið undir mig, og
það er tilgangslaust að vera
ánægður eða óónægður með at-
burði sem maður fær engu um
róðið sjólfur.
Sigríður Anna Elísa-
bet Nikulásdóttir,
f. 1963:
Mér finnst það alveg voða gam-
an. Þó fæ ég svo mikið af gjöf-
um, bæði afmælisgjafir og jóla-
gjafir. Klukkan átta á aðfanga-
dagsmorguninn fæ ég alltaf
mjólk og kökur og súkkulaði í
rúmið, og þá drekka mamma og
pabbi og systkini mfn þrjú með
mér, svo að það eru eiginlega
jól allan daginn. Ég hlakka voða
mikið til næstu jóla, því þá verð
ég fimm ára, nónar tiltekið kl.
tíu um kvöldið. Svo að þið sjáið
að ég er sannkallað jólabarn!
VIKAN-JÓLABLAÐ 15