Vikan


Vikan - 05.12.1968, Page 29

Vikan - 05.12.1968, Page 29
•>!- 4 4 4 4 * 4 4 4 4 4 x- * * * 4 * * * 4 * * * * 4 4 * * * * 4 * * i i I 4 I 4 4 4 i 4 2t asl upp eftir ánni og mér var sama þótt við færum hægt núna. Ég .býst við að Alísu hafi verið líkt farið, því hún hvatti mig ekki. Eftir stundarkorn, þegar þögnin milli okkar var næstum óbærileg minnti ég Alísu á að Lenny hefði haft byssuna, þegar við vorum um borð í snekkjunni. Hún hefði ekki þurft að biðja leyfis um að koma með okkur. Hún hefði getað neytt okkur til að taka sig, með því að be'ta byssunni. — Ég býst við þvi, sagði Alísa. Þetta var það fyrsta sem hún sagði við mig, eftir að Montez dó. — En hún gerði það ekki. — Nei, hún gerði það ekki. — Þegar allt kemur til alls, sagði ég, — bjargaði hún lífi þínu. - Ha? — Nú, gerði hún það ekki? — Jú, ætli það ekki, andvarpaði Alísa. — Vektu ekki Pollý, hún er loksins sofnuð. — Ekkert vekur Pollý núna né næstu tíu klukkustundirnar, þú veizt það. Ég vil fá að vita hvað þú átt við þegar þú segir, ætli það ekki. — Hún bjargaði lífi mínu. Kann- ske bjargaði ég lífi hennar eða kannske þú hafir bjargað lífum okkar allra. Mér er sama. — Vegna þess að þú hatar hana.. — Þú ert ekki sérlega vel gef- inn, Johnny, er það? — Ég reyni. — Nú jæja, hún er horfin. Húrr er horfin. Þau eru öll horfin og við höfum Pollý og mér er rétt sama um allt annað. Ég vil ekki tala um það. — Ég er hræddur um að þú neyðist til þess, sagði ég. — Það eru þrju lik þarna niðri í fenjunum. — Við drápum þá ekki, Johnny. Reyndu að muna það. — Var þetta gófulega sagt? — O, Johnny, sagði hún þreytu- lega. — Hvað viltu að ég geri. Gráti yfir þessu? Ég hef grátið nóg f dag. Það eina, sem ég þrái er að þessi dagur líði og hann er liðinn. Það er það eina sem mig varðar um. — Og eigum við að segja lög- reglunni það? Rödd hennar var köld og hörð: - Hvenær fékkstu þá flugu í höf- uðið að fara til lögreglunnar?' Johnny? — Ég hef verið að hugsa um það. — Hættu þá að hugsa um það! hreytti hún út úr sér. — Er ekki mál til komið að við förum til lögreglunnar? — Nei, Johnny. Ég skal segja þér hvenær rétti tíminn var til að fara til lögreglunnar. Það var í gær, óður en þessi martröð byrj- aði. Ef þú hefðir þá haft ofurlítið vit og ofurlítið hugrekki hefðirðu farið til þeirra og skýrt nákvæm- lega fyrir þeim hvað gerðist ó neð- anjarðarbrautarstöðinni og ekkerf af því, sem gerðist í dag hefði ótt sér stað. En nú, eins og þú segir, eru þrjú lík niðri í fenjunum og það vill svo til að Lenny, vinkona þín, myrti einn og hún er horfin. Það er engin leið að $kýra fyrir neinum, það sem gerðist þarna né sanna fyrir neinum, hvað gerðist þarna og ef þú heldur að ég ætli að láta þetta grúfa yfir mér, það sem ég á eftir ólifað, ferðu villur vegar. Þú ferð líka villur vegar ef þú heldur, að ég ætli að leyfa eigin- inmanni mínum — hvað sem hann er — að láta handtaka sig og draga sig í gegnum yfirheyrslur og rétt- arhöld, eða dóttir mín verði teymd upp í vitnastúkuna með öllu því skítkasti og mannvonzku sem því tilheyrir —• nei. Nei, við förum ekki til lögreglunnar. Við látum þetta kyrrt liggja og þegjum og látum mólin taka sína stefnu. Skilurðu? — Hún er ekki morðingi, svar- aði ég heimskulega og tortryggn- islega. — Nújá, hef ég rægt engilinn, Johnny? — Montez átti sannarlega skilið það sem hann fékk. — Hver ertu, John Camber, að ákveða hver á skilið að lifa og hver á skilið að deyja? Hvernig vogar þú að segja mér að Mont- ez hafi fengið það sem hann átti skilið? Þetta væri svei mér falleg- ur heimur ef við — við öll fengj- um það sem við ættum skilið. — Fyrir guðs skuld! hrópaði ég. — Það var ekki ég, sem kom þessu í kring. Ég vissi ekki einu sinni að hún hefði byssu, þú vissir það. Þú sást hana taka hana upp úr tösk- unni og þá tókst þú að öskra og æpa að Montezi og gerðir hann hálfbrjálaðan svo hann gat ekki einu sinni miðað á okkur og það gaf henni tækifæri sem hún þarfn- ■aðist. — Hvað ertu að reyna að segja, Johnny? sagði hún lágt. — Að ég Ihafi drepið Montez? — Það voru ekki mín orð. — Hversvegna ekki? Það er satt, er það ekki? Hann sagðist ætla að drepa barnið mitt. Ég hata ekki, Jöhnny, og það er erfitt fyrir mig ■að vera reglulega reið nokkrum, >en ég held að ég geti drepið hvern þann, sem ógnar barninu mínu á þann hátt. — Þar á meðal þessa pestarjómfrú þína, þessa Lenny. Ég sagði ekkert fleira. Það var e'kkert meira að segja. Síðasta sígarettan mín var flekk- uð — annaðhvort af skít eða blóði og þegar ég bauð Alísu hana hristi hún höfuðið með andstyggð. En ■einhver breyting hafði orðið á mér, svo ég kveikti í henni og tottaði hana þakklátur og staraði síðan hugsi á konu mína. Hún gaf mér ekkert eftir. Það er sagt að enskar stúlkur séu blíðar, lágmæltar og verði góðar eiginkonur og það er eins satt og hver önnur tíu orða allsherjarlýsing á heilli þjóð getur orðið — eða kannske ofurlítið meira, en ekkert óbrigðult. Ef til vill var Alísa að hugsa um ameríska karlmenn í heild sinni; en ég ákvað með sjálfum mér að; héðan í frá skyldi ég ekki veðja svo mikið sem tuttugu sentum á getu mína til að ímynda mér hvað Alísa væri að hugsa um. Þegar við komum að bryggju bátaleigunnar sáum við dökka þúst á bryggjunni og ofurlítinn Ijósblett á þústinni. Þetta reyndist vera Mulligan með vindil í munninum og hann var mikið feginn, þegar hann batt bátinn og hjálpaði okk- ur upp á bryggjuna. Alísa rétti honum Pollý svo hún kæmist upp úr bátnum sjálf, en Pollý vaknaði ekki. Hún svaf án þess að rumska til klukkan ellefu næsta dag. Mulligan hélt varfærnislega á barninu og gægðist framan í það og þegar hann rétti Alisu það aft- ur sagði hann: — Þetta er falleg og hraustleg stúlka, frú Camber. Hún á skilið ærlegt faðmlag. — Það var ærlegt faðmlag, and- varpaði Alísa. — Ég var of kvíðinn til að geta sofið, Camber, sagði Mulligan við mig. Ég er lítill karl hérna og það hefði verið mikið áfall að missa þennan bát og mótor, svo ég er himinlifandi að sjá það hér afur. Svo klöngraðist ég upp úr bátn- um og hann starði á mig með van- trú í augum. — Ut í hverjum djöflinum ertu smurður? - Blóði. — Jesús, blæðir þér? — Þetta er ekki mitt blóð, herra Mulligan. — Þú gætir andskotakornið held- ur ekki hreyft þig ef svo væri. Komdu, ég á kaffikönnu í skúrnum og þú getur sagt mér frá því og ekki sagt mér frá því, eftir því sem þér þóknast. — Ég held ég verði að segja þér fró þvi. Við fórum inn í kofann. Hann lagði nokkrar sessur á borð- ið og bjó til beð handa Pollý, þar sem hún hélt áfram að sofa, fast og vel. Svo gaf hann okkur sterkt kaffi og við drukkum það fegin- samlega. — Það er djöfull að sjá þig, Camber, sagði hann. — Þú ert þak- in storknu blóði frá hvirfli til ilja og hárið á þér er eins og skorið út úr krossviði. í hvaða andskotans sláturhúsi voruð þið? — Ég náði barninu mínu, sagði ég varfærnislega. Þetta var eina grobbið sem ég lét eftir mér all- an þennan langa dag. — Rétt er það. Viltu segja mér frá því? — Ef ég segi þér frá því, sagði Alísa. — Leggjum við okkur í þín- ■ar hendur. Mulligan rétti fram tvær hrjúfar, stórar hendur með lófana upp, fingurnir voru öróttir og liðirnir ó jþeim stærri en þeir áttu að vera, ihúðin grómtekin af olíu og föst- :um óhreinindum. Mjóar, svartar ilínur, sem sápa náði ekki til. — Þær eru Ijótar eins og erfða- syndin, sagði hann. — Þær brotn- uðu margsinnis, þegar ég var í bnefaleikunum. Ég var í millivigt -K -K -K I -K -K $ í sjö ár, enginn meistari en all- sæmilegur. Ég vil helzt ekki minn- ast þess tíma, en þetta eru eins heiðarlegar hendur og hendur ^ obbans, en það segir ekki mikið. -K Hugsið málið. -k — Þetta eru góðar hendur, sagði í Alísa og kinkaði kolli. í — En það er bara eitt, frú Cam- £ ber. — Ef þið ætlið til lögreglunn- -K ar, banna ég ykkur að segja mér -k nokkurn skapaðan hlut. J — Við ætlum ekki til lögregl- í unnar, sagði ég. j Þá hóf Alísa frásögnina. Hún í sagði vel frá og samvizkusamlega ■* og þegar hún sagði honum frá því í sem gerðist á þilfari snekkjunnar í sagði hún þannig fró því, að ég * birtist í betra Ijósi en mér bar. Hún -K gerði þessar athafnir brjálæðinga, J sem slógust í algjörri örvæntingu, í að orrustu háðri af viti og gerði j mig mun hraustari og hugrakkari en ég ótti skilið. Ekki að hún hafði sagt ósatt eða ýkt, hún sagði bara þannig frá því. Mulligan hlustaði og horfði á mig með sívaxandi virðingu. Ég vissi ekki hvernig ég átti að bregðast við þessari virð- ingu, en mér þótti hún góð. Þegar Alísa hafði lokið máli sínu, þagði Mulligan stundarkorn. , Hann kveikti í vindlinum og tottaði -K hann hugsi, svo sagði hann: -k — Djöfullinn hirði þetta, nú ligg I ég laglega í því, orðinn í vitorði j£ um morð. -f -K — Við erum ekki morðingjar, -K sagði Alísa. -*c w — Hver sá, sem er vitni að morði eða ýtir undir það á nokkurn hátt, jj er í vitorði um það. Sá sem veit * af morði og gerir ekkert I því er í -K vitorði um það. Hann er í vitorði í — þú ert í vitorði — ég er í vitorði. J Ég lét ykkur hafa bátinn, minnizt f þess. Og hvernig í ósköpunum J ætlið þið að sanna að þessi Shlak- mann hafi dáið af blóðmissi? — Við vitum að svo var. — Getið þið sannað það? — Líkskoðun sannar það, sagði Alísa. — Kannske já og kannske nei. Setjum nú svo að hann Camber okkar hérna hafi brotið á honum hausinn með hnúajárnunum? Mað- urinn dó af því að hjartað í hon- um hætti að slá. En hver er kom- inn til með að segja hvað kom hjarta hans til að hætta að slá? Hér stendur sá, sem ekki kann að slást, illa að vígi. Og þessi Montez er ekki ómerkilegur þorpari, hann er diplómat. — Það er rétt, samþykkti Alísa. — Þetta er ærið Ijótt. — Þetta er erfitt — já. En trúir þú okkur? — Ég trúi þér, frú Camber? En hversu hrein erum við? Spurning- in er, er hægt að rekja slóðina hingað til bátaleigunnar, til þín og eiginmanns þíns? — Ef svo fer, sagði Alísa, — sverjum við að við höfum stolið frá þér bátnum. Það losar þig und- an öllu. Framhald á bls. 38 VIKAN-JÓLABLAÐ 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.