Vikan


Vikan - 05.12.1968, Page 68

Vikan - 05.12.1968, Page 68
— Væni minn, nú ertu hlægilegur, sagði Annette og rétti hendina út eftir bók, sem lá á borðinu. Þú þarfnast min alls ekki. Þú sérð eins mikið af mér og þú kærir þig um, og lætur þig annars ekki mikið varða um mig. Ég held þú gerir réttast í því að þegja. Mér dettur ekki í hug að vekja hneyksli, það geturðu verið viss um. Svo skulum við ekki tala meira um þetta.... Soames starði á hana, en svo fór hann, án þess að segja nokkurt orð. Þetta kom af því að kvænast franskri stúlku.... og þó, án henn- ar hefði hann ekki eignazt Fleur. Annette hafði gert skyldu sína. Hún hefir á réttu að standa, hugsaði hann, ég get ekkert gert. Sjálfsbjargarhvöt hans kom honum til að þegja og þagga málið niður. Ef maður neitar að trúa staðreyndum, þá verður ekkert úr slíkum málum. , Þetta var leiðindamál, þetta með Fleur og Jon, hugsaði Jo For- syte. Hann var þreyttur og gekk að glugganum til að opna hann. Hann átti mjög erfitt með andardrátt nú orðið. Hann hafði ein- hverja köfnunartilfinningu og honum fannst hjartað tútna út. Hann settist að skrifborðinu og byrjaði á bréfi, reyndi mikið á sig og strikaði oft út: Elsku drengurinn minn! Þú ert orðinn nógu gamall til að skilja að það er erfitt fyrir eldra fólk að leggja gerðir sínar í lífinu undir dóm barna sinna. Ekki sízt þegar ástæðurnar eru eins og hjá móður þinni og mér. Flestir munu segja að við höfum syndgað. Það er réttara að segja að við eigum viðburðaríka fortíð, og það er tilgangur minn með þessu bréfi að segja þér frá því sem á daga okkar hefir drifið, sérstaklega vegna þess að þetta snertir líf þitt á örlaga- ríkan hátt. Fyrir mörgum árum, svo mörgum árum, að það var árið 1883, þá var móðir þín tvítug, og hún varð fyrir því óláni að ganga í hjónaband, sem varð henni ekki til heilla. Hún var eignalaus og bjó með stjúpmóður sinni, sem hún átti enga sam- leið með. Maðurinn sem hún giftist var Soames frændi minn, faðir Fleur. Það var strax viku eftir brúðkaupið, að henni varð ljóst að þetta hjónaband hennar voru hræðileg mistök.... Jo hafði reynt að halda bréfinu í léttum tón, en eftir því sem hann skrifaði meira, gleymdi hann sér og sagði nákvæmlega hvað drifið hefði á daga þeirra, og vegna tilfinningarótsins, sem fékk algert vald yfir honum, notaði hann sterkari lýsingar....... Já, þetta er saga okkar, Jon, skrifaði hann að lokum. Ef þú heldur fast við ást þina á dóttur þessa manns, verður það til að eyðileggja lífshamingju móður þinnar. Ef þú kvongast Fleur verða börnin ykkar jafnt barnabörn Soames eins og móður þinn- ar, barnabörn þessa manns, sem einu sinni átti móður þína, eins og menn eiga þræla. Reyndu að losa þig við þessa ást, Jon, svo hjarta móður þinnar bresti ekki! Svo braut hann bréfið með þessari játningu saman og stakk þvi í vasann. Það var laugardagur, og sem betur fór gat hann hugsað um þetta fram yfir helgina, því að bréfið næði aldrei til Jons fyrr en á mánudag, hvort sem var. Honum var nokkuð léttara við að hafa þennan frest. Hann var búinn að tala um þetta við Irenu, og hún hafði lagt hendurnar um hálsinn á honum og sagt: — Gerðu það sem þér finnst réttast. Það var síðdegis þennan dag að Jo vaknaði upp af blundi í hæg- indastólnum, og sá þá son sinn standa við gluggann. Hann brosti syfjulega, og Jon gekk til hans og kyssti hann á ennið. Þá fyrst sá hann svipinn á andliti sonar síns. — Ég kom heim til að segja þér nokkuð, pabbi. Við Fleur erum TRYGGIÐ YÐUR Gleðileg jól og færsælt komandi ár MEÐ TRYGGINGU FRÁ OSS aq íslands 68 VTKAN-JÓLABLAÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.