Menntamál - 01.12.1939, Page 21

Menntamál - 01.12.1939, Page 21
MENNTAMÁL 147 í skólanum, þegar vel tekst, en sá áhugi er þeim mjög sjaldan lifandi uppspretta nýs áhuga og nýrra afreka. Og sjaldan fylgir hann barninu langt út fyrir veggi skólans eða varir að námstíma þeirra loknum. Þetta er þó illa farið. Og hætt er við, að við, með þessum hætti, ölum upp áhugalausa, eigingjarna ónytjunga, sem lítt verða færir um að skapa þjóð vorri glæsilega framtíð, né sjálfum sér góð og holl lífsskilyrði. Það er svo með allt líf, að einstaklingurinn verður að fá að vaxa eftir sínum hætti. Og um börn er það svo, að þótt uppeldi þeirra lúti að vísu sömu heildarlögmálum, þá verður hvert einstakt barn að fara að nokkru leyti sínar eigin leiðir til manndóms og þroska, ef sálarlíf ein- staklingsins á að vera heilbrigt og fullkomið samræmi milli vilja og athafnalífs þess. Þá er annað atriði, sem er einnig höfuðnauðsyn góðs uppeldis. Svo fljótt sem auðið er, þarf barnið að fá skyldur við sitt hæfi. Það þarf alltaf að eiga áhugaefni, sem það getur unnið að í frítímum sínum. Barnið þarf ávallt að eygja takmark, sem það getur keppt að, þar sem það getur unnið sigra, bæði á sjálfu sér og þeim viðfangsefnum, sem leiöa að takmarkinu. Barnið er félagsvera, og í samstarfi með öðrum börnum þroskast ýmsir beztu eiginleikar þess, eftir að vissum aldri er náð. Þess vegna ætti skólinn að geta verið barninu holl félagsheild, ef störf skólans veittu barninu nógu frjáls og hugðnæm verkefni. Þó hygg ég að þessu yrði vænlegar kom- ið fyrir með því, að skólinn tæki í sína þjónustu félags- formið og fengi á þann hátt börnin til að vinna meira saman að ákveðnum hollum viðfangsefnum, annaðhvort án fastbundins félagsskapar í sjálfu starfi og náminu, eða þá að skólinn stuðlaði að því, að börnin mynduðu félag, sem væri að meira eða minna leyti í nánu samstarfi við sjálft skólastarfið. Það myndi, ef vel tækist, auðga störf 10*

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.