Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 59
MENNTAMÁL
185
Jónas Helgason, dómkirkjuorganisti
Jónas Helgason er fæddur í
Reykjavík 28. febrúar 1839, og átti
því 100 ára fæðingarafmæli á
þessu ári. Hann var járnsmiður,
en tók að gefa sig við hljóðfæra-
leik og söngfræði undir eins og
tækifæri gafst. Stofnaði söngfé-
lagið „Harpa“ 1862. Sigldi árið
1875 til Kaupmannahafnar til
tónlistarnáms. Hann hætti við
járnsmíðina 1881 og starfaði eftir
það eingöngu í þágu sönglistar-
innar. Við andlát Péturs Guðjohn-
sen 1877 varð J. H. eftirmaður
hans við dómkirkjuna. Prá 1881
hafði hann 1000 kr. ársstyrk frá
Alþingi til að veita organleikara-
efnum ókeypis kennslu. Hann var
einnig kennari í söng við kvenna-
skólann og við barnaskólana í
Reykjavík og í Mýrarhúsum. — Kennslustörf Jónasar hafa haft víð-
tæk áhrif, en enn meiri þátt hafa þó söngbækur hans átt í því að
glæða sönglíf þjóðarinnar. Jónas gaf út hvert söngritið á fætur öðru
t. d. Söngva og kvæði I.—IV. hefti, Söngkennslubók fyrir byrjendur
I.—X. hefti o. m. fl.. Hann samdi og nokkur lög. Kunnust eru: „Við
hafið ég sat“, „Sólu særinn skýlir" og „Þar fossinn í gljúfranna fellur
þröng“. Lög þessi eru falleg og látlaus og reynslan hefir sýnt, að í þeim
er sá lífskraftur, sem lengi mun duga.
Áhrif Jónasar á íslenzkt sönglíf hafa verið mikil og heillavænleg, og
þeir, sem nú lifa hafa byggt á þeim grundvelli, er hann og aðrir braut-
ryðjendur nýrri tónlistar hafa lagt.
(Útdráttur úr greinum Baldurs Andréssonar og Páls Halldórssonar
með leyfi þeirra).