Menntamál - 01.03.1955, Side 40
32
MENNTAMÁL
störfum, en forhlé skulu gerð, áður en menn eru farnir að
þreytast.
Kennurum er bent á að athuga gaumgæfilega kaflann
Nám í Mannþekking eftir Símon Jóh. Ágústsson og Náms-
geta manna í Hugur og hönd eftir Poul Bahnsen.
Flestum er kunn skrýtlan um „prestana“ við veginn.
Þeir „vísa veginn, en ganga hann ekki“. Það er oft auð-
velt að vísa veginn, en það er meira vert að ganga réttan
veg, að sýna þekkingu sína í verki. Skárra er þó að vísa
réttan veg heldur en rangan, jafnvel þótt „presturinn“ sé
ófær að ganga hann. Ég hef kosið að minna hér á nokkrar
hagnýtar námsreglur, sem flestum eru kunnar og þraut-
reyndar bæði af leikum og lærðum. Því aðeins koma nýj-
ungar að gagni, að nýtilegri geymd sé ekki kastað á glæ.
Við samningu þessa greinakorns hef ég haft til hlið-
sjónar Indlæringens Pædagogik eftir Rasmus Jakobsen i
Psykologiske Studier, 2. Serie, Nr. 8. Kommission: Munks-
gaards Forlag.
Magnús Gíslason
fyrv. skólastjóri er nýkominn heim frá Svíþjóð, en þar
hefur hann dvalið frá því snemma s.l. sumar. Hefur hann
nú tekið við námstjórastarfi við skóla gagnfræðastigsins
í Reykjavík.
Námskeið.
Landsamband framhaldsskólakennara og fræðslumála-
stjóri munu gangast fyrir námskeiði fyrir móðurmáls-
kennara í júní n. k. Síðar verður skýrt nánar frá tilhög-
un námskeiðsins, stað og tíma.