Menntamál - 01.08.1962, Page 58
148
MENNTAMÁL
GESTUR ÞORGRlMSSON:
Fjölskynskennsla og
tæki hennar.
Vegna áskoranna nokk-
urra kennara, sem fengið
hafa áhuga á fjölskyns-
kennslutækni, „audio-visu-
al“, ákvað ég síðastliðinn
vetur að skrifa grein, sem
gæti orðið til nokkurrar
leiðbeiningar um notkun
mynda við kennslu. Ég
hugðist setja fram fáein-
ar einfaldar reglur, sem
kennarar gætu notað til
að gera myndina áhrifa-
meira kennslutæki og fella
hana á eðlilegan hátt að
námsefninu.
Því lengur sem ég hug-
leiddi þetta mikilvæga mál, varð mér betur ljóst, að sára-
lítill árangur yrði að slíkum leiðbeiningum, nema jafn-
framt væri tekinn til athugunar sá kennslufræðilegi grund-
völlur, sem vísindamenn í þessum fræðum hafa byggt
reglur sínar á.
Ef við erum viðstödd atburð, sem við sjáum og heyrum,
og gerum síðar munnlega grein fyrir honum, veljum við
honum orð í samræmi við þá reynslu, sem við höfum öðl-
azt, orð, sem fyrst og fremst hafa þýðingu fyrir okkur sjálf
og eru alls ekki skiljanleg öðrum en þeim, sem hafa orðið
Geslnr Þorgrímsson.