Menntamál - 01.08.1962, Page 66
156
MENNTAMÁL
Annmarkar námsferðar eru meðal annars þessir:
I. Hún krefst nákvæmrar skipulagningar langt fram í
tímann.
II. Hún er háð veðri og samgöngum.
III. Hún getur haft í för með sér röskun á heildar náms-
áætlun, vegna þess að sæta þarf veðri og ef til vill fleiri
aðstæðum, sem ekki er hægt að vita fyrirfram.
VI. Hún getur tekið svo langan tíma, að árangurinn svari
ekki fyrirhöfn.
Nokkrar tillögur um undirbúning, skipulagningu og til-
högun námsferðar.
í fyrsta lagi verður kennarinn að meta kosti og ann-
marka þeirrar ferðar, sem hann hefur í huga. Þetta verð-
ur hann að gera með tilliti til þess, hve mörg atriði er
hægt að komast í snertingu við og hvernig má nota þau á
árangursríkan hátt við skólastarfið.
í öðru lagi verður hann að athuga, hvort útvega þarf
tæki eða efni, sem nauðsynlegt er að nota til frekari skýr-
ingar á verkefnum, svo að nemendur geti fullkomlega til-
einkað sér viðfangsefnið, svo sem kort, myndir, línurit,
o. s. frv.
í þriðja lagi þarf að finna eitt eða fleiri atvik til örv-
unar bekkjarstarfsemi, sem getur hjálpað nemendunum til
þess að tileinka sér æskileg viðhorf, starfsaðferðir, hæfni
og siði.
/ fjórða lagi þarf að hafa samráð við skólastjóra eða
yfirkennara, eða jafnvel foreldra, ef ferðin tekur lengri
tíma en börnin eru að jafnaði í skólanum. Einnig þarf að
fá leyfi hjá eigendum eða umsjónarmönnum þeirra staða,
sem á að heimsækja.
/ fimmta lagi er nauðsynlegt að búa nemendur undir
ferðina.